Fræðsluráð - 9
- Kl. 13:30 - 16:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 9
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Guðmundur H Sigurðarson
- Anna Rósa Magnúsdóttir
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
Skóladagatal leikskóla 2018-2019
Málsnúmer 2018040175Leikskólafulltrúi lagði fram til staðfestingar skóladagatöl leikskólanna fyrir skólaárið 2018-2019.
Fræðsluráð samþykkir skóladagatöl leikskólanna fyrir skólaárið 2018-2019.
Fræðsluráð vill árétta mikilvægi þess að samráð verði haft við gerð skóladagatals á milli leik- og grunnskóla í hverju skólahverfi.
Fulltrúi D-lista gerir eftirfarandi bókun: Þar sem innleiðingu aðalnámskrár leikskóla er lokið er lagt til að sjötti lokunardagur verði tekinn burt enda um tímabundna ráðstöfun að ræða frá árinu 2011.
Fulltrúar meirihlutans og fulltrúi V-lista gera eftirfarandi bókun: Talið er nauðsynlegt að festa í sessi sex starfsdaga til að viðhalda því faglega starfi sem unnið er í leikskólum Akureyrarkaupstaðar.
Fylgiskjöl
Grunnskólar Akureyrarkaupstaðar - gjaldfrjáls námsgögn
Málsnúmer 2017060154Fyrirkomulag innkaupa á námsgögnum fyrir skólaárið 2018-2019 lagt fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Kennslustundaúthlutun til grunnskóla
Málsnúmer 2017030172Ósk um viðauka fyrir árið 2018 vegna fjölgunar kennslustunda lögð fram til kynningar.
Nútímavæðing í skólum
Málsnúmer 2017080076Sviðsstjóri lagði fram tillögu að skiptingu fjárveitingar til leik- og grunnskóla vegna þróunar í upplýsingartækni.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um skiptingu fjármagns til þróunar á upplýsingatækni í leik- og grunnskólum Akureyrarkaupstaðar.
Fylgiskjöl
Háskólinn á Akureyri og Akureyrarkaupstaður - rammasamningur
Málsnúmer 2011110017Á 8. fundi fræðsluráðs var sviðsstjóra falið að yfirfara gildandi rammasamning með fulltrúum Háskólans á Akureyri.
Skipaður hefur verið starfshópur með fulltrúum Akureyrarkaupstaðar og Háskólans á Akureyri sem hefur það hlutverk að endurskoða gildandi rammasamning milli aðila. Í hópnum situr fulltrúi MSHA, fulltrúi kennaradeildar HA og Karl Frímannsson sviðsstjóri fyrir hönd Akureyrarbæjar. Hópnum er ætlað að skila tillögum fyrir 1. júní 2018.Rekstur fræðslumála 2018
Málsnúmer 2018030030Rekstrarstaða fræðslumála og frávikagreining fyrir janúar og febrúar 2018 lögð fram til kynningar.
Fylgiskjöl
Gjaldskrá dagforeldra og niðurgreiðslur til foreldra
Málsnúmer 2018040176Rekstrarstjóri gerði grein fyrir breytingum á gjaldskrá dagforeldra og niðurgreiðslum til foreldra.
Málinu er frestað til næsta fundar fræðsluráðs.
Fylgiskjöl
Viðauki vegna hækkunar húsaleigu Tröllaborga
Málsnúmer 2018040177Ósk um viðauka fyrir árið 2018 vegna hækkunar á húsaleigu í leikskólanum Tröllaborgum lögð fram til kynningar.
Fræðsluráð óskar jafnframt eftir útskýringu á hækkun framkvæmdakostnaðar frá upphaflegri áætlun.
Fylgiskjöl