Íþróttaráð - 122
- Kl. 14:00 - 16:00
- Fundarherbergi á 2. hæð í Rósenborg
- Fundur nr. 122
Nefndarmenn
- Tryggvi Þór Gunnarssonformaður
- Helga Eymundsdóttir
- Þorvaldur Sigurðsson
- Árni Óðinsson
- Erlingur Kristjánsson
- Anna Jenný Jóhannsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Jón Einar Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
- Örvar Sigurgeirssonáheyrnarfulltrúi
- Ellert Örn Erlingssonfundarritari
Íþróttafélagið Þór - leigutímar í Boganum, haustönn 2012
Málsnúmer 2012120016Erindi dags. 27. nóvember 2012 frá Íþróttafélaginu Þór þar sem óskað er eftir að leigutekjur af Boganum haustið 2012 renni til félagsins. \nÁrni Óðinsson S-lista vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.\nEiður Arnar Pálmason framkvæmdastjóri Þórs sat fundinn undir umræðum þessa liðar, en vék af fundi áður en til afgreiðslu kom.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.

Íþróttafélagið Þór - kaup Akureyrarbæjar á gámum fyrir sjónvarpsaðstöðu á Þórsvelli
Málsnúmer 2012120017Erindi dags. 27. nóvember 2012 frá Íþróttafélaginu Þór þar sem óskað er eftir því að Akureyrarbær kaupi gáma af félaginu sem notaðir eru fyrir sjónvarpsupptökur á Þórsvelli.\nÁrni Óðinsson S-lista vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.\nEiður Arnar Pálmason framkvæmdastjóri Þórs sat fundinn undir umræðum þessa liðar, en vék af fundi áður en til afgreiðslu kom.

Íþróttaráð getur ekki orðið við erindinu.

Íþóttafélagið Þór - aðkoma Akureyrarbæjar að breytingum á anddyri Hamars/Bogans
Málsnúmer 2012120018Erindi dags. 27. nóvember 2012 frá Íþróttafélaginu Þór þar sem óskað er eftir þátttöku Akureyrarbæjar í kostnaði við framkvæmdir á anddyri félagsheimilis Þórs. \nÁrni Óðinsson S-lista vék af fundi við afgreiðslu þessa liðar.\nEiður Arnar Pálmason framkvæmdastjóri Þórs sat fundinn undir umræðum þessa liðar, en vék af fundi áður en til afgreiðslu kom.

Íþróttaráð tekur undir hugmyndir um endurbætur á anddyri Hamars og vísar erindinu til stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar.

Sundlaug Akureyrar - opnunartímar
Málsnúmer 2012020044Umræður um opnunartíma Sundlaugar Akureyrar um jól og áramót.\nElín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar og Katrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindardeildar sátu fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð hefur tekið ákvörðun um að ekki verði bætt við opnunartíma Sundlaugar Akureyrar um jól og áramót 2012. Skoðaðir verða möguleikar á slíkum opnunum á næsta ári.

Sundlaug Akureyrar - afsláttur fyrir hópa
Málsnúmer 2012020042Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar kynnti tillögur að tilboðum og afsláttum fyrir hópa og fyrirtæki í Sundlaug Akureyrar.\nKatrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindardeildar sat fundinn undir þessum lið.

Íþróttaráð samþykkir fyrirlagðar hugmyndir forstöðumanns Sundlaugar Akureyrar og felur honum að vinna málið áfram með forstöðumanni íþróttamála.

Ice-Husky félagið - skíðagöngubraut í Hlíðarfjalli
Málsnúmer 2012110115Tekið fyrir erindi sem bæjarráð vísaði til íþróttaráðs á fundi sínum þann 22. nóvember sl. varðandi áhuga Ice-Husky félagsins að fá aðgang að skíðagöngubrautinni í Hlíðarfjalli í einn dag í vetur fyrir sleðakeppni Huskyhunda.

Íþróttaráð samþykkir fyrirlagt erindi og felur forstöðumanni íþróttamála og forstöðumanni Hlíðarfjalls að vinna málið áfram.

Ráðstöfun á styrk Akureyrarbæjar til ÍBA
Málsnúmer 2012120019Lagt fram til kynningar bréf dags. 21. nóvember 2012 frá stjórn ÍBA varðandi ráðstöfun á styrk Akureyrarbæjar til ÍBA.

Fjárhagsáætlun - íþróttamál 2013
Málsnúmer 2012080030Fjárhagsáætlun íþróttamála fyrir árið 2013 yfirfarin. \nKatrín Björg Ríkarðsdóttir framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindardeildar sat fundinn undir þessum lið.