Stjórn Akureyrarstofu - 282
- Kl. 14:00 - 17:10
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 282
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Fanney Stefánsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Finnur Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu
Listasafnið á Akureyri
Málsnúmer 2015060091Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins fór yfir endurskoðaða fjárhagsáætlun safnsins fyrir árið 2019.
Stjórn Akureyrarstofu leggur áherslu á að nú þegar verði farið í hagræðingu í rekstri Listasafnsins og stefnt verði að því að hann verði innan fjárhagsáætlunar. Stjórnin telur að þær hugmyndir sem lagðar voru fram á fundinum séu ófullnægjandi. Stjórn felur jafnframt sviðsstjóra í samvinnu við fjársýslusvið að vinna úttekt á rekstri Listasafnsins á Akureyri á yfirstandandi rekstrarári.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2020
Málsnúmer 2019050308Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu fyrir árið 2020.
Í aðdraganda fjárhagsáætlunarvinnu vegna ársins 2020 vill stjórn Akureyrarstofu kanna möguleika á því að selja Sigurhæðir og óskar eftir umsögn Minjasafnsins á Akureyri um þá tillögu.
Stjórn Akureyrarstofu felur starfsmönnum að kanna möguleika á því að leigja eða selja húsnæði Deiglunnar.
Vegna takmarkaðrar nýtingar á frumkvöðlasetrinu við Glerárgötu 34 samþykkir stjórn Akureyrarstofu að segja upp samningum vegna starfseminnar við Glerárgötu og hún verði lögð niður í núverandi mynd. Í skoðun eru aðrar útfærslur í samstarfi við AFE.
Finnur Dúa fulltrúi V-lista er sammála bókuninni að öllu leyti en leggur áherslu á að Deiglan verði nýtt áfram undir menningar- og listatengda starfsemi.
Fylgiskjöl
Safnastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2014110087Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu gerði grein fyrir vinnu við safnastefnu.
Beiðni um endurnýjun á samningi
Málsnúmer 2019080185Erindi dagsett 12. júlí 2019 frá Gesti Einari Jónassyni f.h. Flugsafns Íslands þar sem óskað er eftir endurnýjun á samningi um rekstrarstyrk til Flugsafnsins.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir endurnýjun á rekstrarsamningi til þriggja ára að upphæð kr. 300.000 pr. ár.
Stytta af Tinna og Tobba á Torfunefsbryggju
Málsnúmer 2019020048Lagt fram minnisblað Maríu H. Tryggvadóttur verkefnastjóra ferðamála varðandi stöðu málsins.
Starfsmönnum falið að vinna áfram að málinu.
Fylgiskjöl
Samfélagssvið - starfsmannamál
Málsnúmer 2018110172Lögð fram til kynningar samantekt á yfirvinnu í hlutfalli við dagvinnu á kostnaðarstöðvum sem heyra undir stjórn Akureyrarstofu.
Stjórn Akureyrarstofu leggur áherslu á að yfirvinna skuli vera innan áætlunar.
Fylgiskjöl