Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 783
- Kl. 13:00 - 13:40
- Fundarherbergi skipulagssviðs
- Fundur nr. 783
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonbyggingarfulltrúi
- Arnar Ólafsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Eyrarlandsvegur 31 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2020060369Erindi dagsett 9. júní 2020 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd Þorsteins Más Baldvinssonar sækir um byggingarleyfi fyrir nýju einbýlishúsi á lóðinni nr. 31 við Eyrarlandsveg. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 14. september 2020.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Rauðamýri 3 - umsókn um bílastæði og úrtak úr kantsteini
Málsnúmer 2020090483Erindi dagsett 15. september 2020 þar sem Hjörleifur Árnason sækir um bílastæði og úrtak úr kantsteini við hús sitt nr. 3 við Rauðumýri. Meðfylgjandi er mynd.
Byggingarfulltrúi samþykkir bílastæðið með 4 metra úrtaki með vísun í vinnureglur um leyfi fyrir bílastæðum og úrtökum í kantstein og þeim skilyrðum sem þar koma fram, enda verði frágangur á lóðamörkum gerður í samráði við nágranna. Umsækjandi greiði kostnað vegna færslu á götugögnum, ef með þarf.
Kjarnagata 45 - umsókn um byggingarleyfi fyrir svalalokun
Málsnúmer 2020090604Erindi dagsett 22. september 2020 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd Kjarnagötu 45 húsfélags, kt. 580517-0990, sækir um byggingarleyfi fyrir svalalokunum í húsi nr. 45 við Kjarnagötu.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Skólastígur 5 - umsókn um breytta skráningu
Málsnúmer 2020090616Erindi dagsett 22. september 2020 þar sem Þröstur Sigurðsson fyrir hönd TG Eigna ehf., kt. 590214-0350, sækir um breytta skráningu á húsi nr. 5 við Skólastíg, úr gistiskála í einbýlishús.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.