Bæjarráð - 3663
- Kl. 08:15 - 09:59
- Fundaraðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
- Fundur nr. 3663
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Hilda Jana Gísladóttir
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Hlynur Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásthildur Sturludóttirbæjarstjóri
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023
Málsnúmer 2019020276Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2019 - viðauki
Málsnúmer 2018050147Lagður fram viðauki 10.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka með 5 samhljóða atkvæðum og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Hlíðarfjall - rekstur
Málsnúmer 2019070527Bæjarstjórn samþykkti á fundi sínum þann 19. nóvember sl. að rekstri Hlíðarfjalls verði breytt í B-hluta fyrirtæki. Jafnframt vísaði bæjarstjórn málinu aftur til bæjarráðs til frekari meðferðar.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir með 5 samhljóða atkvæðum að skipa 3ja manna stjórn yfir Hlíðarfjall sem heyri beint undir bæjarráð. Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna málið áfram.
Kjarasamningur Matvís 2019 - 2023
Málsnúmer 2019110349Kynning á nýgerðum kjarasamningum við iðnaðarmenn.
Dan Jens Brynjarsson sviðsstjóri fjársýslusviðs og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Nefndalaun - breytingar á reglum 2019
Málsnúmer 2019020403Lögð fram tillaga að breytingu á Reglum um launakjör og starfsaðstöðu bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Akureyrarbæ. Breytingin felst í því að greitt verður fyrir fundasetu í ungmennaráði.
Halla Margrét Tryggvadóttir sat fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir tillöguna með 5 samhljóða atkvæðum.
Fylgiskjöl
Reglur um notkun á merki Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2019110419Lögð fram drög að reglum um notkun á merki Akureyrarbæjar.
Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir tillöguna með 5 samhljóða atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Hönnunarstaðall Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2018100303Lögð fram tillaga að hönnunarstaðli Akureyrarbæjar.
Hulda Sif Hermannsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra og Halla Margrét Tryggvadóttir sviðsstjóri stjórnsýslusviðs sátu fund bæjarráðs undir þessum lið.Bæjarráð samþykkir tillögu að hönnunarstaðli með 5 samhljóða atkvæðum og vísar henni til afgreiðslu í bæjarstjórn.
Frumvarp til laga um almennar íbúðir (hækkun tekju- og eignamarka leigjenda, sérstakt byggðaframlag, veðsetningu), 320. mál
Málsnúmer 2019110221Lagt fram til kynningar erindi dagsett 14. nóvember 2019 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um almennar íbúðir (hækkun tekju- og eignamarka leigjenda, sérstakt byggðaframlag, veðsetningu), 320. mál 2019. Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 3. desember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0363.htmlFrumvarp til laga um lyfjalög (lausasölulyf), 266. mál
Málsnúmer 2019110281Lagt fram til kynningar erindi dagsett 18. nóvember 2019 frá velferðarnefnd Alþingis þar sem óskað er umsagnar um frumvarp til laga um lyfjalög (lausasölulyf), 266. mál 2019.
Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 2. desember nk. á netfangið nefndasvid@althingi.is.
Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: https://www.althingi.is/altext/150/s/0294.htmlBæjarráð felur bæjarstjóra að senda inn umsögn í samræmi við umræður á fundinum.