Umhverfis- og mannvirkjaráð - 109
- Kl. 08:15 - 11:24
- Fjarfundur
- Fundur nr. 109
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Sunna Hlín Jóhannesdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Beitarhólf í eigu Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2021110971Lagt fram minnisblað dagsett 19 nóvember 2021 varðandi útleigu beitarhólfa í eigu Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að ganga til samninga við Hestamannafélagið Létti um útleigu á beitarhólfum í eigu Akureyrarbæjar.
Sorphirða í Akureyrarbæ - útboð 2022
Málsnúmer 2021101499Rætt um aðgerðaáætlun í aðdraganda útboðs á sorpsamningi Akureyrarbæjar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð stefnir að því að bjóða út söfnun og flutning á sorpi eftir áramót.
Búnaðarkaup UMSA 2021
Málsnúmer 2021010381Teknar fyrir beiðnir til búnaðarkaupa frá frístundaráði.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að leggja 5,5 milljónir króna í kaup á stólum og borðum í Víðilund og 6 milljónir í skorklukku við Þórsvöll og verði féð tekið af búnaðarkaupasjóði umhverfis- og mannvirkjasviðs 2021.
Öðrum beiðnum er frestað og vísað til umræðu á árinu 2022.
Sala tækja á umhverfismiðstöð
Málsnúmer 2021040823Lagt fram minnisblað vegna sölu eldri tækja á umhverfismiðstöð.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir eftirfarandi tilboð og felur sviðsstjóra að fara betur yfir tilboð í valtara og götusóp:
YA-962 - Mercedes Benz 312D - 213.000 kr.
Bjóðandi er Sigurður Ingvar Ólafsson.
NZ-180 - Mercedes Benz 312D - 133.000 kr.
Bjóðandi er Sigurður Ingvar Ólafsson.
DY-673 - Renault Trafic - 53.000 kr.
Bjóðandi er Andri Freyr Jónsson.
LL-801 - Renault Kangoo - 131.112 kr.
Bjóðandi er Hrafn Svavarsson.
ME-868 - Mitsubishi L200 - 45.000 kr.
Bjóðandi er Andri Freyr Jónsson.
MF-023 - Subaru Impreza - 45.000 kr.
Bjóðandi er Jón V Finnsson.
IB-0972 - Kubota - 380.000 kr.
Bjóðandi er Rúnar Gústafsson.
IB-1195 - Kubota - 840.000 kr.
Bjóðandi er Svavar Jónsson.
VI-060 - Marshall sturtuvagn - 555.000 kr.
Bjóðandi er Arnar Gústafsson.
Fjárkerra - 107.563 kr.
Bjóðandi er Svavar Jónsson.
Hjólastólalyfta - 33.000 kr.
Bjóðandi er Sigurður Ingvar Ólafsson.
Bílalyfta - 353.000 kr.
Bjóðandi er Sigurður Ingvar Ólafsson.Kaffihús í Lystigarðinum á Akureyri - rekstur
Málsnúmer 2021110967Lögð fram greinargerð dómnefndar vegna opnunar tilboðs í rekstur á kaffihúsinu í Lystigarðinum á Akureyri. Eitt tilboð barst.
Það er mat dómnefndar að hugmyndafræði bjóðanda passi vel inn í Lystigarðinn ásamt því að gert er ráð fyrir heilsársopnun á kaffihúsinu. Markhópagreining bjóðanda er vel upp sett þar sem hugsað er um alla aldurshópa. Einnig er talsvert lagt upp úr viðburðahaldi sem yrði gott aðdráttarafl fyrir kaffihúsið og Lystigarðinn.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði Kaffi Lystar í leigu á húsinu.Viðaukar og tilfærslur 2021
Málsnúmer 2021061742Lagt fram minnisblað varðandi tilfærslu innan viðhaldsáætlunar fasteigna og leiguíbúða, færslu innan Klappa milli ára og hækkun og færslu milli ára í Lundarskóla.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir eftirfarandi viðauka og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarráði:
Leikskólinn Klappir
43 milljónir kr. - Tilfærsla á fjármagni frá fjárfestingaráætlun 2020 til 2021.
50 milljónir kr. - Viðauki vegna verðbóta við verksamning og hærri fjármagnskostnaðar á byggingartíma.
17 milljónir kr. - Viðauki vegna aukins framkvæmdakostnaðar við verkið.
Samtals viðauki á árinu kr. 110 milljónir.
Lundarskóli
107 milljónir kr. - Tilfærsla á fjármagni frá fjárfestingaráætlun 2022 til 2021.
Viðhald fasteigna
25 milljónir kr. - Tilfærsla á fjármagni frá viðhaldsáætlun fasteigna Akureyrarbæjar yfir í viðhaldsáætlun leiguíbúða Akureyrarbæjar.Fjárhagsáætlun UMSA 2022
Málsnúmer 2021081199Eignfærsluáætlun 2022-2025 lögð fram til kynningar.