Umhverfis- og mannvirkjaráð - 51
- Kl. 08:15 - 11:15
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 51
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenfundarstjóri
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Unnar Jónsson
- Gunnar Gíslason
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Umhverfis- og samgöngustefna Akureyrarbæjar - verkefni UMSA
Málsnúmer 2018080975Lagt fyrir minnisblað dagsett 21. febrúar 2019 og tekin fyrir staða á verkefnum umhverfis- og samgöngustefnu.
Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála, Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála, Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar og Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sátu fundinn undir þessum lið.Verkefnahópur um framtíðarstaðsetningu miðbæjarbiðstöðvar SVA<br/> <br/>
Málsnúmer 2019020236Lagt fyrir erindisbréf vegna verkefnahóps um framtíðarstaðsetningu miðbæjarbiðstöðvar SVA.
Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar og Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð skipar Unnar Jónsson S-lista og Jönu Salóme I. Jósepsdóttur V-lista í verkefnahópinn.
Hljóðveggir við hringtorg Borgarbraut/Bugðusíðu
Málsnúmer 2015030234Lagt fram skilamat dagsett 27. febrúar 2019 varðandi hljóðveggi við hringtorg á gatnamótum Borgarbrautar og Bugðusíðu.
Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar og Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sátu fundinn undir þessum lið.Smáverkaútboð 2019
Málsnúmer 2019020412Lagt fyrir minnisblað dagsett 28. janúar 2019 vegna smáverkaútboðs og mögulegrar framlengingar samninga.
Jónas Vigfússon forstöðumaður Umhverfismiðstöðvar og Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti að framlengja samninga til eins árs.
Slökkvilið - byggðasamlag
Málsnúmer 2019020413Lagt fram minnisblað dagsett 28. febrúar 2019 varðandi mögulegt samstarf slökkviliða á Eyjafjarðarsvæðinu.
Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.Slökkvilið - tækjakaup 2019
Málsnúmer 2019020063Lagt fram minnisblað dagsett 28. febrúar 2019 varðandi kostnað við uppfærslu á dælubíl.
Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri sat fundinn undir þessum lið.Naustaskóli 6. áfangi - lóð
Málsnúmer 2017020140Lagt fram skilamat dagsett 1. mars 2019 varðandi framkvæmd á lóð Naustaskóla.
Hlíðarskóli - stækkun 2018
Málsnúmer 2018110138Lagt fram fyrir ráðið skilamat dagsett 26. febrúar 2019 á framkvæmdum við Hlíðarskóla.
Glerárskóli - bygging leikskóla, lóðar, tengibygginga og samkomusals
Málsnúmer 2018050021Kynnt staða málsins.
Búnaðarkaup vegna fræðsluráðs
Málsnúmer 2019020414Lögð fyrir ráðið beiðni fræðsluráðs til búnaðarkaupa fyrir árið 2019.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir beiðni fræðsluráðs til búnaðarkaupa að upphæð kr. 36,2 milljónir.
Búnaðarkaup vegna frístundaráðs
Málsnúmer 2019020414Lögð fyrir ráðið beiðni frístundaráðs til búnaðarkaupa fyrir árið 2019.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur sviðsstjóra að afla frekari upplýsinga.
Hlíðarfjall - kaup á snjósleða
Málsnúmer 2017090010Lögð fyrir beiðni frístundaráðs dagsett 25. febrúar 2019 varðandi kaup á snjósleða í Hlíðarfjall.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaupin og færist það af liðnum ýmis tæki og búnaður í Eignarsjóði gatna o.fl.
Stöðuskýrslur rekstrar UMSA 2018
Málsnúmer 2018050084Lögð fyrir stöðuskýrsla rekstrar fyrir árið 2018.
Starfsáætlanir 2019
Málsnúmer 2018080973Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir starfsáætlun umhverfis- og mannvirkjasviðs fyrir árið 2019.
Jafnréttisstefna - skipan þróunarleiðtoga
Málsnúmer 2018110171Samkvæmt Jafnréttistefnu Akureyrarbæjar skal hvert ráð velja sér þróunarleiðtoga jafnréttismála sem hefur m.a. það hlutverk að vera formlegur málsvari kynjasamþættingar í starfi viðkomandi ráðs.
Umhverfis- og mannvirkjaráð frestar afgreiðslu málsins og óskar eftir því að starfsmaður samfélagssviðs komi inn á fund umhverfis- og mannvirkjaráðs og kynni málið.
Jana Salóme I. Jósepsdóttir V-lista, Gunnar Gíslason D-lista og Berglind Bergvinsdóttir M-lista óska bókað:
Þróun jafnréttismála hjá Akureyrarbæ er mikilvægt og allt um lykjandi verkefni. Því er eðlilegt að launaður starfsmaður hafi umsjón með málaflokknum frekar en að kjörnir fulltrúar taki að sér verkefnið í sjálfboðavinnu.Þjónustukönnun Gallup 2018 - kynning í ráðum
Málsnúmer 2019020200Lögð fram til kynningar þjónustukönnun sem Gallup gerði í 19 stærstu sveitarfélögum landsins í lok árs 2018.