Stjórn Akureyrarstofu - 185
- Kl. 16:15 - 17:30
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 185
Nefndarmenn
- Sigfús Arnar Karlssonvaraformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Sædís Gunnarsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Hulda Sif Hermannsdóttirverkefnastjóri viðburða og menningarmála
- Skúli Gautasonframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Húsverndarsjóður og byggingalistaverðlaun Akureyrar 2015-2021
Málsnúmer 2015040046Niðurstöður faghóps um styrkveitingar og viðurkenningar kynntar.
Niðurstaða faghóps var samþykkt samhljóða.
Arkitektastofan Kollgáta skal hljóta Byggingalistaverðlaun Akureyrar 2015 fyrir Íþróttamiðstöðina í Hrísey.
Viðurkenningu Húsverndarsjóðs Akureyrar árið 2015 hlýtur Hús Hákarla-Jörundar.Starfslaun listamanna 2015
Málsnúmer 2015020152Niðurstöður faghóps um úthlutun starfslauna listamanna kynntar.
Niðurstaða faghóps var samþykkt samhljóða.
Lára Sóley Jóhannsdóttir fiðluleikari skal hljóta starfslaun listamanna 2015-2016.Heiðursviðurkenning Akureyrarstofu 2015
Málsnúmer 2015040082Umræður um veitingu heiðursviðurkenningu stjórnar Akureyrarstofu á Vorkomunni.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að Iðunni Ágústsdóttur og Gunnari Frímannssyni skuli veittar heiðursviðurkenningar á Vorkomu Akureyrarstofu.
Vorkoma Akureyrarstofu 2015
Málsnúmer 2015040015Hulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri viðburða- og menningarmála greindi frá undirbúningi fyrir Vorkomu Akureyrarstofu, sem haldin verður á sumardaginn fyrsta 2015.
Hulda Sif vék af fundi eftir eftir að umræður höfðu farið fram.Stjórn Akureyrarstofa þakkar Huldu Sif fyrir komuna.
Þriggja mánaða uppgjör
Málsnúmer 2015040084Lagt fram til kynningar þriggja mánaða uppgjör í þeim málaflokkum sem heyra undir Akureyrarstofu.