Bæjarstjórn - 3401
- Kl. 16:00 - 18:35
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3401
Nefndarmenn
- Sigríður Huld Jónsdóttir1. varaforseti
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Preben Jón Pétursson
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Dagbjört Elín Pálsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Bergþóra Þórhallsdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Sóley Björk Stefánsdóttir
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Dagný Magnea Harðardóttirskrifstofustjóri Ráðhúss ritaði fundargerð
Bæjarstjórn Akureyrar - breytingar í nefndum 2014-2018
Málsnúmer 2014060234Lögð fram tillaga S-lista um breytingu á skipan aðal- og varafulltrúa í bæjarráði.
Sigríður Huld Jónsdóttir, tekur sæti aðalfulltrúa í bæjarráði í stað Loga Más Einarssonar.
Dagbjört Pálsdóttir tekur sæti varafulltrúa í bæjarráði í stað Sigríðar Huldar Jónsdóttur.Bæjarstjórn samþykkir tillöguna með 11 samhljóða atkvæðum.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2017-2020 - fyrri umræða
Málsnúmer 2016050137Bæjarráð vísaði á fundi sínum þann 3. nóvember 2016 fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2017-2020 til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
Bæjarfulltrúar D-lista lögðu fram tillögu að breyttri framkvæmdaáætlun Akureyrarbæjar 2017-2020.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að vísa tillögu bæjarfulltrúa D-lista að breyttri framkvæmdaáætlun Akureyrarbæjar 2017-2020 til frekari yfirferðar í bæjarráði.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 samhljóða atkvæðum að vísa fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2017-2020 til frekari yfirferðar í bæjarráði og síðari umræðu í bæjarstjórn.