Velferðarráð - 1299
- Kl. 14:00 - 16:04
- Hlíð - Dagþjálfun
- Fundur nr. 1299
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Róbert Freyr Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Snæbjörn Ómar Guðjónsson
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttirsviðsstjóri búsetusviðs
- Kristín Birna Kristjánsdóttirfundarritari
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2019
Málsnúmer 2019030355Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit búsetusviðs janúar - febrúar 2019.
Nýbygging - öryggisgæsla
Málsnúmer 2019030202Á fundi velferðarráðs 20. mars 2019 lagði Laufey Þórðardóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs fram til kynningar beiðni um breytingu á fyrirhugaðri byggingu búsetukjarna í Nonnahaga. Var Laufeyju falið að gera ítarlega þarfa- og kostnaðargreiningu á verkefninu.
Karólina Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.Beiðni um breytingu á fyrirhugaðri byggingu búsetukjarna samþykkt og vísað til umhverfis- og mannvirkjaráðs.
Akstursþjónusta Akureyrarbæjar - reglur
Málsnúmer 2019040309Laufey Þórðardóttir settur sviðsstjóri búsetusviðs lagði fram drög að reglum um akstursþjónustu Akureyrarbæjar.
Karólína Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.Drög að reglum um akstursþjónustu Akureyrarbæjar kynnt og óskað eftir að þau verði send til umsagnar öldungaráðs og samráðshóps um málefni fatlaðs fólks.
Verkferlar
Málsnúmer 2019040197Lagt fyrir minnisblað frá Svanborgu Bobbu Guðgeirsdóttur forstöðumanni Plastiðjunnar Bjargs-Iðjulundar um rekstur Endurvinnslunnar hf.
Svanborg Bobba Guðgeirsdóttir forstöðumaður PBI sat fundinn undir þessum lið. Karólína Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð felur Karólínu Gunnarsdóttur settum sviðsstjóra fjölskyldusviðs og Svanborgu Bobbu Guðgeirsdóttur forstöðumanni PBI að fylgja málinu eftir og koma með niðurstöðu síðar.
Áfangaheimili á Akureyri
Málsnúmer 2018090236Í minnisblaði frá Önnu Marit Níelsdóttur forstöðumanni félagsþjónustu fjölskyldusviðs er kynnt fyrirhuguð ferð starfsmanna félagsþjónustunnar til Noregs til að sækja ráðstefnu um þær áskoranir sem stjórnvöld standa frammi fyrir er varðar áfengis- og vímuefnaneyslu. Einnig stendur til að kynna sér það starf sem Hjálpræðisherinn þar er að vinna með fólki í áfengis- og vímuefnavanda.
Nauðsynlegt er að fræðsla um þessi málefni nái einnig til pólitískra fulltrúa.
Karólína Gunnarsdóttir settur sviðsstjóri fjölskyldusviðs sat fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir að Dagbjört Pálsdóttir formaður velferðarráðs sæki ráðstefnu til Noregs.
ÖA - staða dagþjálfunarverkefnis í Austurhlíð
Málsnúmer 2019040310Laufey Þórðardóttir settur sviðsstjóri búsetussviðs vék af fundi kl. 15:40.
Ingi Þór Ágústsson forstöðumaður Austurhlíðar kynnti stöðu þróunarverkefnis í dagþjálfun.