Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 864
- Kl. 13:00 - 14:15
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 864
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Þórunn Vilmarsdóttirfundarritari
Kjarnagata 55-57 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022030840Erindi dagsett 18. mars 2022 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd B.E. Húsbygginga sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 55-57 við Kjarnagötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Tryggva Tryggvason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Austursíða 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir mathöll
Málsnúmer 2022050169Erindi dagsett 3. maí 2022 þar sem Baldur Ólafur Svavarsson fyrir hönd Norðurtorgs ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir húsi fyrir mathöll á lóð nr. 2 við Austursíðu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Baldur Ólaf Svavarsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Heimaland 7 (mhl. 02 á lóð 3) - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2022050317Erindi dagsett 6. maí 2022 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd SS Byggis ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir húsi á lóð nr. 3 við Heimaland. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Kjarnalundur - umsókn um byggingarleyfi fyrir stækkun svala
Málsnúmer 2022050594Erindi dagsett 11. maí 2022 þar sem Haraldur S. Árnason sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi Kjarnalundar í Kjarnaskógi. Fyrirhugað er að stækka svalir að norðaustan. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Margrétarhagi 14-22 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021061685Erindi dagsett 23. júní 2021 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd VA-verktaka ehf., sækir um byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóð 14-22 við Margrétarhaga. Innkomnar nýjar teikningar 13. maí 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Nonnahagi 12-20 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2019110235Erindi dagsett 13. maí 2022 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd HeiðGuðByggis ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir raðhúsi á lóð 12-20 við Nonnahaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Mýrarvegur Kaupangur - umsókn um byggingarleyfi, endurhæfingarstöð
Málsnúmer 2022050450Erindi dagsett 9. maí 2022 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd Eflingar sjúkraþjálfunar sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum í húsi Kaupangs við Mýrarveg. Fyrirhugað er að opna endurhæfingarstöð á 2. hæð hússins í rými 0207. Í því felst að setja upp lyftu í stað stiga á vesturhlið og glugga, svalahurð og svalir á norðurhlið. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.