Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 284
- Kl. 14:00 - 15:25
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 284
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirframkvæmdastjóri
- Steindór Ívar Ívarssonverkefnastjóri viðhalds
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Breytt notkun á tveimur raðhúsaíbúðum
Málsnúmer 2016020246Framkvæmdastjóri fór yfir breytta notkun á raðhúsaíbúðum í Hlíð.
Sundlaug Akureyrar - endurnýjun rennibrauta og sundlaugarsvæðis
Málsnúmer 2014020207Farið yfir tilboð sem bárust í iðngreinaútboði framkvæmda við endurbætur á sundlaugarsvæðinu. Eftirfarandi tilboð bárust:
Iðngrein Bjóðendur Upphæð % af áætlun Yfirfarið
Jarðvinna:
Túnþökusalan Nesbræður ehf 11.766.000 119,6% 144,0%
Kostnaðaráætlun 9.836.200
Steypusögun:
Verkval 14.225.800 174,8% 189,0%
Kostnaðaráætlun 8.138.000
Burðarvirki:
Lagnir:
Loftræstilagnir:
Blikk og tækniþjónustan 11.201.300 202,0%
Kostnaðaráætlun 5.546.000
Raflagnir:
Eltech 15.380.018 85,3%
Ljósgjafinn 15.822.952 87,8%
Rafmax 12.835.428 71,2%
Kostnaðaráætlun 18.027.386
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar hafnar öllum tilboðum sem eru yfir kostnaðaráætlun og samþykkir að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda í raflagnahluta útboðsins Rafmax ehf.
Stöðuskýrslur FA 2016
Málsnúmer 2016040037Lögð fram til kynningar stöðuskýrsla 4 fyrir stjórn FA dagsett 30. ágúst 2016.
Fjárhagsáætlun 2017 - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2016080126Lögð fram fyrstu drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 2017.
Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkir húsaleiguáætlun Fasteigna Akureyrarbæjar fyrir árið 2017.