Stjórn Akureyrarstofu - 149
- Kl. 16:00 - 18:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 149
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Jón Hjaltason
- Sigmundur Ófeigsson
- Helena Þuríður Karlsdóttir
- Hildur Friðriksdóttir
- Matthías Rögnvaldssonáheyrnarfulltrúi
- Regína Helgadóttiráheyrnarfulltrúi
- Sigurður Hermannssonáheyrnarfulltrúi
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Endurskoðun menningarstefnu Akureyrarbæjar 2013-2018
Málsnúmer 2011020012Farið yfir lokadrög að endurskoðaðri menningarstefnu.\nHulda Sif Hermannsdóttir verkefnisstjóri viðburða og menningarmála sat fundinn undir þessum lið.
<DIV>Stjórn Akureyrarstofu samþykkir drögin fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.</DIV>
Sjónlistamiðstöðin á Akureyri - skipulag og þróun
Málsnúmer 2012040129Farið yfir samþykkt fyrir Sjónlistamiðstöðina sem er í vinnslu og rætt um þá endurskoðun sem fyrirhuguð er á skipulagi og starfsemi hennar.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að skipa Hildi Friðriksdóttur og Jón Hjaltason í vinnuhóp sem fari yfir samþykktir og skipulag Sjónlistamiðstöðvarinnar. Framkvæmdastjóri Akureyrarstofu starfi með þeim að verkefninu.Ný örmerki fyrir safnkost - Amtsbókasafnið
Málsnúmer 2013100288Lagt fram minnisblað dags. 15. október 2013 frá amtsbókaverði um kosti og kostnað við að breyta merkingakerfi fyrir safnkost Amtsbókasafnins.
<DIV>Erindinu er vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.</DIV>
Fjárhagsáætlun 2014 - Akureyrarstofa
Málsnúmer 2013080216Farið var yfir fjárhagsáætlun með hliðsjón af hagræðingakröfu í menningar- og atvinnumálum.
<DIV>Stjórn Akureyrarstofu samþykkir fyrirliggjandi tillögur um lækkun kostnaðar en þær fela í sér bæði sölu eigna og lækkun rekstrakostnaðar um 15 mkr. í menningarmálum og 10 mkr. í atvinnumálum.</DIV>