Fræðsluráð - 2
- Kl. 13:30 - 15:30
- Síðuskóli
- Fundur nr. 2
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Margrét Kristín Helgadóttir
- Þórhallur Harðarson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
Síðuskóli - kynning fyrir fræðsluráð
Málsnúmer 2018010286Ólöf Inga Andrésdóttir skólastjóri Síðuskóla kynnti húsnæði skólans.
Fræðsluráð þakkar Ólöfu kærlega fyrir kynninguna.
Einkarekinn ungbarnaleikskóli
Málsnúmer 2017120367Linda Lárusdóttir þroskaþjálfi mætti á fundinn og viðraði hugmyndir sínar um rekstur ungbarnaleikskóla.
Fræðsluráð þakkar Lindu kærlega fyrir áhugaverða kynningu og mun taka málið til áframhaldandi umræðu.
Erindi frá stjórnendum leikskóla um rými í leikskólum
Málsnúmer 2018010285Erindi undirritað af þremur leikskólastjórum á Akureyri fyrir hönd allra leikskólastjórnenda þar sem þeir lýsa áhyggjum sínum yfir því að of lítið rými er fyrir hvert barn í leikskólum. Það hefur áhrif á geðtengsl og einbeitingu, aukinn kvíða og félags- og málþroska barna.
Jakobína Elín Áskelsdóttir áheyrnarfulltrúi leikskólastjórnenda í fræðsluráði og Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi fóru yfir málið.Hlíðarskóli - vinnuhópur vegna endurbóta á húsnæði
Málsnúmer 2017080129Óskað er eftir tilnefningu fulltrúa fræðsluráðs í vinnuhóp vegna framkvæmda í Hlíðarskóla.
Fræðsluráð samþykkir að Dagbjört Pálsdóttir formaður fræðsluráðs verði fulltrúi í vinnuhóp vegna framkvæmda í Hlíðarskóla.
Glerárskóli - vinnuhópur vegna nýbyggingar á Glerárskólareit.
Málsnúmer 2017080128Óskað er eftir tilnefningu í fulltrúa fræðsluráðs í vinnuhóp vegna nýbyggingar við Glerárskóla.
Fræðsluráð samþykkir að Dagbjört Pálsdóttir formaður fræðsluráðs verði fulltrúi í vinnuhóp vegna leikskólanýbyggingar við Glerárskóla.
Skýrsla skólaþings sveitarfélaga 2017
Málsnúmer 2018010287Dagbjört Pálsdóttir formaður fræðsluráðs vakti máls á helstu atriðum í skýrslunni s.s. áhyggjur af fækkun í kennarastétt, helstu niðurstöður úttektar á skóla fyrir alla og fleira. Sagði hún skólaþingið hafa verið sérstaklega áhugavert, fræðandi og jákvætt.
Hún hvatti fundarmenn til að fara yfir megin niðurstöður í umræðum á fundinum og horfa á útsendingu fundarins.