Fræðsluráð - 8
- Kl. 13:30 - 16:05
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 8
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Guðmundur H Sigurðarson
- Þórhallur Harðarson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Hvernig getur skólaþjónusta sveitarfélaga stutt við starfsþróun skóla?
Málsnúmer 2018010414Hermína Gunnþórsdóttir dósent við Háskólann á Akureyri og Birna María B. Svanbjörnsdóttir lektor við Háskólann á Akureyri mættu á fundinn og kynntu erindi sem þær fluttu á Skólaþingi sveitarfélaga 6. nóvember 2017.
Skólavogin 2018
Málsnúmer 2018030274Sviðsstjóri kynnti Skólavogina sem er matskerfi fyrir grunnskóla.
Skóladagatal grunnskólanna 2018-2019
Málsnúmer 2018030275Skóladagatöl grunnskólanna 2018-2019 voru lögð fyrir fundinn til yfirferðar og staðfestingar. Sviðsstjóri kynnti yfirlit um öll skóladagatöl grunnskólanna sem fylgdi með í málsskjali.
Fræðsluráð samþykkir skóladagatöl grunnskólanna fyrir skólaárið 2018-2019.
Fylgiskjöl
Háskólinn á Akureyri og Akureyrarkaupstaður - rammasamningur
Málsnúmer 2011110017Í ljósi þess að verið er að endurskoða skólastefnu Akureyrarbæjar og nýlega búið að gera skipulagsbreytingar á fræðslusviði er ástæða til að samningur við Miðstöð skólaþróunar HA verði tekinn til endurskoðunar.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra að yfirfara gildandi samning með fulltrúum Háskólans með það fyrir augum að endurskoða framkvæmd hans.
Nútímavæðing í skólum
Málsnúmer 2017080076Í fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2018 skal verja kr. 20 milljónum til stuðnings nútímavæðingar í leik- og grunnskólum. Jafnframt er gert ráð fyrir kr. 20 milljóna framlagi 2019 og 2020, samtals 60 milljónum. Mikilvægt er að ráðstöfun fjárins byggi á stefnu og þarfagreiningu sem ekki liggur enn fyrir. Ekki eru forsendur fyrir því að byrja á verkefninu fyrr en greining og stefnumörkun liggur fyrir.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra að gera þarfagreiningu/tillögu í samráði við stjórnendur leik- og grunnskóla.
Fylgiskjöl
Langtímaáætlun fræðslumála 2018-2027
Málsnúmer 2017050029Lögð fram langtímaáætlun fræðslumála 2018-2027 til afgreiðslu.
Fræðsluráð vísar langtímaáætlun fræðslumála 2018-2027 til bæjarráðs til frekari úrvinnslu.