Bæjarstjórn - 3399
- Kl. 16:00 -
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 3399
Nefndarmenn
- Matthías Rögnvaldssonforseti bæjarstjórnar
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Dagbjört Elín Pálsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
- Sigríður Huld Jónsdóttir
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
Starfsmenn
- Eiríkur Björn Björgvinssonbæjarstjóri
- Katrín Björg Ríkarðsdóttiraðstoðarmaður bæjarstjóra ritaði fundargerð
Austurbrú 2-12 - umsókn um hækkun á nýtingarhlutfalli
Málsnúmer 20160800571. liður í fundargerð skipulagsnefndar dagsett 12. október 2016:
Erindi dagsett 15. ágúst 2016 þar sem Sigmundur Ófeigsson fyrir hönd Furuvalla 7 ehf., kt. 530212-0170, óskar eftir leyfi til að hækka nýtingarhlutfall á lóðunum við Austurbrú, númer 2-12 til að nýta ónýtt rými í kjallara. Ekki er verið að auka grunnflöt húsanna. Skipulagsnefnd heimilaði umsækjanda að leggja fram breytingu á deiliskipulagi á fundi 24. ágúst 2016. Tillagan er unnin af Loga Má Einarssyni hjá Kollgátu, dagsett 29. septemer 2016.
Helgi Snæbjarnarson L-lista bar upp vanæfi sitt í málinu og var það samþykkt. Vék hann af fundi við umræður og afgreiðslu málsins.
Einungis er um að ræða minniháttar aukningu á nýtingarhlutfalli og er breyting sem varðar Akureyrarkaupstað og lóðarhafa. Þess vegna leggur skipulagsnefnd til við bæjarstjórn að deiliskipulagstillagan verði samþykkt í samræmi við 2. málslið, 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar með 11 samhljóða atkvæðum.
Alþingiskosningar 2016 - undirkjörstjórnir
Málsnúmer 2016090001Lagður fram listi með nöfnum þrjátíu og sex aðalmanna og þrjátíu og sex varamanna í undirkjörstjórnir við alþingiskosningar þann 29. október nk.
Bæjarstjórn samþykkir þær tilnefningar sem fram koma á listanum með 11 samhljóða atkvæðum.
Alþingiskosningar 2016 - kjörskrá
Málsnúmer 2016090001Lögð fram eftirfarandi tillaga að bókun:
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að semja kjörskrá. Jafnframt er bæjarstjóra veitt fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna alþingiskosninga 29. október nk. í samræmi við 27. gr. laga um kosningar til Alþingis.Bæjarstjórn samþykkir framlagða tillögu að bókun með 11 atkvæðum.
Skýrsla bæjarstjóra
Málsnúmer 2010090095Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri fór yfir helstu atriði í störfum sínum frá síðasta fundi bæjarstjórnar.