Framkvæmdaráð - 227
- Kl. 08:15 - 10:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 227
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Sigríður María Hammer
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Sigfús Arnar Karlsson
- Helgi Már Pálsson
- Jón Birgir Gunnlaugsson
- Tómas Björn Hauksson
- Bergur Þorri Benjamínssonfundarritari
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar - þriggja ára áætlun 2012-2014
Málsnúmer 2011010090Lögð voru fram gögn vegna vinnu við þriggja ára áætlun framkvæmdaráðs.\n

Framkvæmdaráð samþykkir með 4 atkvæðum að vísa áætluninni til bæjarráðs.

Sigfús Arnar Karlsson B-lista sat hjá við afgreiðsluna.

Slökkvilið Akureyrar - gjaldskrá 2011
Málsnúmer 2011010022Lögð fram tillaga að hækkun á gjaldskrá Slökkviliðs Akureyrar í samræmi við rekstrarkostnað.

Framkvæmdaráð samþykkir gjaldskrána fyrir sitt leyti og vísar henni til bæjarráðs.

Miðbær - almenningssalerni
Málsnúmer 20100400422. liður a) í fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 13. janúar 2011 og 1. liður í fundargerð viðtalstíma bæjarfulltrúa dags. 27. janúar 2011 sem bæjarráð vísaði til framkvæmdaráðs og framkvæmdadeildar á fundum sínum 27. janúar og 3. febrúar sl.\nSpurst var fyrir um almenningssalernin undir kirkjutröppunum og opnun í sumar.\nMikill fjöldi farþega af skipunum fer í miðbæinn, kirkjuna og í Lystigarðinn. Hof muni ekki anna þessu á háannatíma.\nÓskað eftir að ákvörðun um lokun salernanna verði endurskoðuð í bæjarráði.

Framkvæmdaráð stendur við fyrri ákvörðun um lokun almenningssalerna.

Snjómokstur og hálkuvarnir
Málsnúmer 2011020007Kynning á fyirkomulagi snjómoksturs. \nGunnþór Hákonarson yfirverkstjóri gatnamála mætti á fundinn undir þessum lið.

Framkvæmdaráð þakkar Gunnþóri fyrir góða kynningu.