Stjórn Hlíðarfjalls - 12
09.03.2021
Hlusta
- Kl. 13:00 - 14:00
- Fjarfundur
- Fundur nr. 12
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Andri Teitsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
- Brynjar Helgi Ásgeirssonforstöðumaður Hlíðarfjalls
Skíðalyfta í Hlíðarfjall
Málsnúmer 2016030107Akureyrarbær hefur formlega tekið við nýrri skíðalyftu af Vinum Hlíðarfjalls. Stefnt er að formlegri opnun lyftunnar á næstu dögum. Rætt um nafngift á lyftunni.
Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir tillögu frá Vinum Hlíðarfjalls um nafngift. Verður nafnið opinberað við formlega opnun lyftunnar.
Hlíðarfjall - fjárhagsáætlun
Málsnúmer 2020090427Endurskoðuð fjárhagsáætlun fyrir árið 2021 lögð fram.
Stjórn Hlíðarfjalls óskar eftir því að fá uppfærða áætlun lagða fram um mánaðamótin apríl/maí nk.
Hlíðarfjall - framtíðarstarfsemi og rekstur
Málsnúmer 2020061017Farið yfir útboðsgögn vegna fyrirhugaðrar úthýsingar á rekstri Hlíðarfjalls.
Stjórn Hlíðarfjalls felur sviðsstjóra að koma á framfæri athugasemdum sem komu fram á fundinum.