Umhverfis- og mannvirkjaráð - 123
- Kl. 08:15 - 11:00
- Fundarherbergi UMSA
- Fundur nr. 123
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Inga Dís Sigurðardóttir
- Þórhallur Harðarson
- Gunnar Már Gunnarsson
- Jana Salóme I. Jósepsdóttir
- Jón Hjaltasonáheyrnarfulltrúi
- Sindri S. Kristjánssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Menningarhúsið Hof - Leiklistarrými
Málsnúmer 2022090102Lagt fram minnisblað dagsett 2. september 2022 varðandi uppsetningu á rými fyrir leiklistarskólann í kjallara Hofs.
Steindór Ívar Ívarsson forstöðumaður viðhalds sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í framkvæmdir á rými fyrir leiklistarskólann í Hofi. Áætlaður kostnaður um kr. 11 milljónir og rúmast hann innan fjárfestingaráætlunar fasteigna.
Leiksvæði í Nausta- og Hagahverfi
Málsnúmer 2022090091Lögð fram drög að umhverfisfrágangi á leiksvæðum í Haga- og Naustahverfi dagsett 3. ágúst 2022.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála og Jónas Valdimarsson verkefnastjóri mælinga sátu fundinn undir þessum lið og kynntu verkefnið.Umhverfis- og mannvirkjaráð þakkar kynninguna og stefnt er að því að klára uppbyggingu á næstu tveimur árum.
Skarðshlíð - umferðaröryggi 1. áfangi
Málsnúmer 2021060780Lagt fram minnisblað dagsett 2. september 2022 varðandi stöðu framkvæmda við Skarðshlíð.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri mælinga sat fundinn undir þessum lið.Stofnstígar með Vegagerðinni
Málsnúmer 2022020885Lagt fram minnisblað dagsett 2. september 2022 varðandi stofnstíga milli sveitafélaga um Akureyri í samstarfi við Vegagerðina.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri mælinga sat fundinn undir þessum lið.Leirustígur - hönnun og framkvæmdir
Málsnúmer 2022021084Lagt fram minnisblað dagsett 2. september 2022 varðandi stíg frá Drottningarbraut að sveitarfélagsmörkum við Leiruveg.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri mælinga sat fundinn undir þessum lið.UMSA - rekstur 2022
Málsnúmer 2022090090Lögð fram rekstrarskýrsla dagsett 1. september 2022 varðandi rekstur UMSA fyrstu 7 mánuði ársins 2022.
UMSA - endurnýjun bifreiða og tækja
Málsnúmer 2022090104Lagt fram minnisblað dagsett 1. september 2022 varðandi endurnýjun á mælingabifreið.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir kaup á vistvænum bíl að upphæð allt að kr. 8 milljónir. Starfsmönnum sviðsins er falið að finna skammtímalausn á málinu á meðan.
Fjárhagsáætlun UMSA 2023
Málsnúmer 2022080337Lagt fram minnisblað dagsett 26. ágúst 2022 varðandi fjárhagsáætlun fyrir árið 2023.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir framlagða húsaleiguáætlun.