Velferðarráð - 1342
- Kl. 14:00 - 15:33
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 1342
Nefndarmenn
- Heimir Haraldssonformaður
- Hermann Ingi Arason
- Guðrún Karitas Garðarsdóttir
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Lára Halldóra Eiríksdóttir
- Sigrún Elva Briemáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðrún Ólafía Sigurðardóttirsviðsstjóri velferðarsviðs
- Karólína Gunnarsdóttirþjónustustjóri velferðarsviðs
- María Sigurbjörg Stefánsdóttirfundarritari
Reglur um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa
Málsnúmer 2010030022Lögð fram drög að breytingum á reglum um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa út frá lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018.
Halldóra Hauksdóttir lögfræðingur velferðarsviðs og Anna Marit Níelsdóttir forstöðumaður í félagsþjónustu sátu fundinn undir þessum lið.Velferðarráð samþykkir breytingar á reglum um styrki til náms og verkfæra- og tækjakaupa og vísar málinu til bæjarstjórnar.
Velferðarráð - fjárhagsáætlun 2022
Málsnúmer 2021080521Lögð fram drög að fjárhagsáætlun velferðarsviðs 2022 og starfsáætlun sviðsins 2022 - 2025.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.Starfsáætlanir ráða 2022
Málsnúmer 2021080829Lögð fram starfsáætlun velferðarsviðs fyrir árið 2022.
Velferðarráð samþykkir framlagða starfsáætlun.
Framkvæmdaáætlun velferðarsviðs 2022 - 2026
Málsnúmer 2021090113Lögð fram drög að framkvæmda- og viðhaldsáætlun velferðarsviðs fyrir árin 2022 - 2026.
Velferðarráð samþykkir áætlunina fyrir sitt leyti og vísar málinu til fjárhagsáætlunargerðar hjá umhverfis- og mannvirkjaráði.
Velferðarráð - rekstraryfirlit 2021
Málsnúmer 2021031922Lagt fram til kynningar yfirlit yfir rekstur velferðarsviðs fyrstu sjö mánuði ársins.
Kolbeinn Aðalsteinsson forstöðumaður skrifstofu velferðarsviðs sat fundinn undir þessum lið.Stefnumótun í öldrunarþjónustu
Málsnúmer 2021081400Lögð fram til kynningar drög að stefnu um heilbrigðisþjónustu við aldraða sem kynnt var á Heilbrigðisþingi þann 20. ágúst sl. Um er að ræða skýrslu Halldórs S. Guðmundssonar dagsetta í júní 2021: Virðing og reisn. Samþætt heilbrigðis- og félagsþjónusta fyrir eldra fólk.
Enn fremur er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga lögð fram til kynningar.