Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 623
- Kl. 13:00 - 13:30
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 623
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonsviðsstjóri skipulagssviðs
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Sjávargata 4 - umsókn um niðurrif
Málsnúmer 2017030079Erindi dagsett 6. mars 2017 þar sem Hanna Dögg Maronsdóttir fyrir hönd Bústólpa ehf. sækir um heimild til að rífa niður bragga á lóðinni nr. 4 við Sjávargötu.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið. Bent skal á að umsækjandi skal tilkynna byggingarstjóra og tilkynna heilbrigðiseftirliti og vinnueftirliti um framkvæmdina sbr. reglugerð nr. 705/2009.
Ægisnes 2 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016120135Erindi dagsett 19. desember 2016 þar sem Ingólfur Guðmundsson fyrir hönd Króksverks ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir hús nr. 2 við Ægisnes. Um er að ræða 474 m² nýbyggingu fyrir starfsemi malbikunarstöðvarinnar Norðurbiks. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valþór Brynjarsson. Innkomnar nýjar teikningar 10. febrúar og 9. mars 2017.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Davíðshagi 10 - umsókn um að undirbúa lóð
Málsnúmer 2017030101Erindi dagsett 9. mars 2017 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd Trétaks ehf. sækir um leyfi til að fjarlægja hól úr móhellu á lóðinni nr. 10 við Davíðshaga til undirbúnings á byggingarframkvæmdum.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið með því skilyrði að ekki verði frekari framkvæmdir á lóðinni fyrr en byggingarleyfi hefur verið veitt.
Daggarlundur 1 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2017020114Erindi dagsett 20. febrúar 2017 þar sem Þórir Rafn Hólmgeirsson, kt. sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishús á lóð nr. 1 við Daggarlund. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Heiðartún 2-12 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2017020134Erindi dagsett 22. febrúar 2017 þar sem Steinmar H. Rögnvaldsson fyrir hönd T21 ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishús á lóð nr. 2-12 við Heiðartún. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Steinmar H. Rögnvaldsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.