Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 638
- Kl. 13:00 - 13:15
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 638
Nefndarmenn
- Leifur Þorsteinssonstaðgengill byggingarfulltrúa
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Hafnarstræti 99-101 - umsókn um breytingar 2. hæð - gistiskáli
Málsnúmer 2016080003Erindi dagsett 3. júlí 2017 þar sem Þorgeir Jónsson fyrir hönd Íkaups ehf., Hildu ehf. og H hostels ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af 2. hæð Hafnarstrætis 99-101. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Þorgeir Jónsson.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.
Matthíasarhagi 5 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2017050137Erindi dagsett 17. maí 2017 þar sem Rögnvaldur Harðarson fyrir hönd Ingólfs Árna Björnssonar og Bryndísar Lindar Bryngeirsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir hús nr. 5 við Matthíasarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Rögnvald Harðarson. Innkomnar nýjar teikningar 5. júlí 2017.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.
Hlíðargata 2 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2017050166Erindi dagsett 26. maí 2017 þar sem Finnur Víkingsson sækir um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á lóð nr. 2 við Hlíðargötu. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Sigurð Hallgrímsson. Innkomnar nýjar teikningar 20. júní 2017.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Matthíasarhagi 1 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2017060016Erindi dagsett 31. maí 2017 þar sem Fanney Hauksdóttir fyrir hönd ÁK smíði ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi á lóð nr. 1 við Matthíasarhaga. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar nýjar teikningar 4. júlí 2017.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Mýrarvegur, Kaupangur - stækkun matvöruverslunar til suðurs, rými 0106 og 0107
Málsnúmer 2017060221Erindi dagsett 29. júní 2017 þar sem Ragnar Fr. Guðmundsson fyrir hönd Ötuls ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á rými 0106 og 0107 (matvöruverslun) í norðurenda Kaupangs, Mýrarvegi. Sótt er um stækkun til suðurs og sameiningu rýma 0106 og 0107. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Loga Má Einarsson.
Staðgengill byggingarfulltrúa frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda á fylgiblaði.
Árstígur 2 - umsókn um byggingarleyfi fyrir spennistöð
Málsnúmer 2017040121Erindi dagsett 24. apríl 2017 þar sem Tryggvi Tryggvason fyrir hönd Norðurorku ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir spennistöð á lóðinni nr. 2 við Árstíg.
Staðgengill byggingarfulltrúa samþykkir erindið.