Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 881
- Kl. 13:00 - 14:00
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 881
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Þórunn Vilmarsdóttirfundarritari
Norðurgata 16 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022090220Erindi dagsett 6. september 2022 þar sem Almar Eggertsson fyrir hönd Sólveigar Klöru Káradóttur sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á húsi nr. 16 við Norðurgötu. Fyrirhugað er að fjölga íbúðum í húsinu úr 4 íbúðum í 5. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Almar Eggertsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Furuvellir 7 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2021101269Erindi dagsett 7. september 2022 þar sem Kári Magnússon fyrir hönd A441 ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum í húsi nr. 7 við Furuvelli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Margrétarhagi 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2022042900Erindi dagsett 17. ágúst 2022 þar sem Anna Margrét Hauksdóttir fyrir hönd BF bygginga sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir raðhúsi á lóð nr. 1 við Margrétarhaga. Innkomnar nýjar teikningar 14. september 2022.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.