Skipulagsráð - 332
- Kl. 08:00 - 11:00
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 332
Nefndarmenn
- Tryggvi Már Ingvarssonformaður
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Orri Kristjánsson
- Arnfríður Kjartansdóttir
- Þórhallur Jónsson
- Helgi Sveinbjörn Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Pétur Ingi Haraldssonsviðsstjóri skipulagssviðs
- Margrét Mazmanian Róbertsdóttirverkefnastjóri skipulagsmála
- Leifur Þorsteinssonfundarritari
Hörgárbraut - umferðaröryggismál
Málsnúmer 2020020376Rætt að nýju um umferðaröryggismál á Hörgárbraut á svæði milli hringtorgs við Undirhlíð og Glerár. Á fundinn mættu Margrét Silja Þorkelsdóttir frá Vegagerðinni og Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar á umhverfis- og mannvirkjasviði.
Skipulagsráð felur sviðsstjóra skipulagssviðs í samráði við umhverfis- og mannvirkjasvið og Vegagerðina að vinna tillögu að mögulegum úrbótum.
Krókeyri - hönnun götu og samræmi við deiliskipulag
Málsnúmer 2020020135Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar á umhverfis- og mannvirkjasviði kynnti tillögur að hönnun á götunni Krókeyri.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við fyrirliggjandi hönnun miðað við 30 km götu.
Sjafnargata og Síðubraut - hönnun á götu
Málsnúmer 2020020613Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar á umhverfis- og mannvirkjasviði kynnti tillögur að útfærslu á gangstíg meðfram Sjafnargötu, sem felur í sér breiðari stíg en gildandi deiliskipulag gerir ráð fyrir. Felur tillagan einnig í sér að lóð bensínstöðvar minnkar og hefur sú breyting verið samþykkt af lóðarhafa.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi tillögu.
Að mati ráðsins er um svo óverulegt frávik frá deiliskipulagi að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn, sbr. ákvæði 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Er því ekki talið að gera þurfi breytingu á deiliskipulaginu.Fylgiskjöl
Skarðshlíð - hönnun á götu og gangstígum
Málsnúmer 2020020623Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar á umhverfis- og mannvirkjasviði kynnti tillögur að breyttri hönnun Skarðshlíðar ásamt aðliggjandi stígum.
Skipulagsráð þakkar Jónasi fyrir kynninguna.
Bílastæðasjóður - gjaldtaka
Málsnúmer 2019050628Lagt fram til umræðu minnisblað bifreiðastæðasjóðs Akureyrar um gjaldtöku á bílastæðum í miðbæ Akureyrar.
Skipulagsráð tekur jákvætt í hugmyndir um gjaldtöku á bílastæðum í miðbæ Akureyrar og felur sviðsstjóra skipulagssviðs að vinna áfram að málinu og gera tillögu að áætlun um innleiðingu í samráði við umhverfis- og mannvirkjasvið.
Helgi Sveinbjörn Jóhannsson áheyrnarfulltrúi M-lista óskar bókað að hann telji að það að auka álögur á íbúa bæjarins sé óásættanlegt. Gjaldtaka á bílastæðum í miðbæ Akureyrar er ekkert annað en auka skattur á íbúa.Kaupvangsstræti 16 - umsókn um breytingu skipulags
Málsnúmer 2019090106Erindi dagsett 12. febrúar 2020 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Fasteigna ehf., kt. 581088-1409, sækir um leyfi til að byggja 4. hæðina á hús nr. 16 við Kaupvangsstræti. Meðfylgjandi eru myndir sem sýna útlit hússins fyrir og eftir breytingu.
Skipulagsráð frestar erindinu. Sviðsstjóra skipulagssviðs er falið að óska frekari gagna frá umsækjanda.
Matthíasarhagi 8, 10 og 12 - umsókn um skipulag
Málsnúmer 2020020400Erindi dagsett 12. febrúar 2020 þar sem Haraldur Sigmar Árnason fyrir hönd Bergfestu ehf., kt.610515-0370, sækir um breytingu á deiliskipulagi lóða 8, 10 og 12 við Matthíasarhaga. Óskað er eftir að byggja 2ja hæða fjölbýli í stað einbýlishúsa. Meðfylgjandi er teikning eftir Harald Sigmar Árnason.
Skipulagsráð hafnar því að svo stöddu að breyta deiliskipulagi í samræmi við fyrirliggjandi erindi.
Fylgiskjöl
Norðurvegur 6-8 - fyrirspurn til skipulagsráðs
Málsnúmer 2020020403Erindi dagsett 12. febrúar 2020 þar sem Sævar Helgason óskar eftir heimild til að breyta Norðurvegi 6-8 í Hrísey úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Engar breytingar eru fyrirhugaðar á húsnæðinu aðrar en almennt viðhald og gildandi teikningar því þar með gildar.
Að mati skipulagsráðs er forsenda breytingar í íbúðarhús að gerð verði breyting á aðal- og deiliskipulagi þar sem lóðin er núna skilgreind sem þjónustulóð. Í kjölfarið væri hægt að sækja um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun. Er sviðsstjóra skipulagssviðs falið að ræða við umsækjanda um framhald málsins.
Sæborg - ósk um leyfi til að byggja bílskúr
Málsnúmer 2020020569Erindi dagsett 20. febrúar 2020 þar sem Brynjar Gauti Schiöth óskar eftir leyfi til að byggja u.þ.b. 80 m² bílskúr við einbýlishús sitt Sæborg á Óseyri. Sjá hugmynd af staðsetningu og stærð í viðhengi.
Skipulagsráð vísar málinu í vinnu við gerð deiliskipulags fyrir Holtahverfi norður.
Gjaldskrá Akureyrarbæjar vegna afgreiðslu- og þjónustugjalda - endurskoðun 2016-2020
Málsnúmer 2016110141Lagt fram minnisblað sviðsstjóra skipulagssviðs dagsett 20. febrúar 2020 þar sem lögð er fram tillaga að breytingu á gr. 2.4 í gjaldskrá Akureyrarbæjar fyrir gjöld skv. lögum um mannvirki og skipulagslögum og önnur afgreiðslu- og þjónustugjöld. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir að framkvæmdaleyfisgjald umfangsmikilla framkvæmda verði samkvæmt samningi milli leyfisveitanda og framkvæmdaraðila en ekki miðað við fast gjald eins og nú er í gildandi gjaldskrá.
Skipulagsráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt.
Sólskógar - nýtt götuheiti
Málsnúmer 2019100175Tekið fyrir að nýju erindi dagsett 4. október 2019 þar sem lögð er fram tillaga lóðarskrárritara Akureyrarbæjar um að gatan þar sem gróðrarstöðin Sólskógar stendur við fái götuheiti.
Skipulagsráð fól sviðsstjóra skipulagssviðs þann 30. október sl. að leita eftir tillögum að götuheiti frá nemendum Naustaskóla. Tillögur bárust 4. desember og voru sendar nafnanefnd til úrvinnslu.
Nafnanefndin leggur til að valið verði á milli Skógargötu og Músagötu.Tillaga nafnanefndar var borin upp til atkvæða og fékk nafnið Skógargata 4 atkvæði og Músagata 1 atkvæði. Gatan fær því nafnið Skógargata.
Skipulagsráð þakkar nemendum Naustaskóla fyrir framlagðar tillögur.Fylgiskjöl
Heiðartún 5 - ósk um aukningu byggingarmagns
Málsnúmer 2020020571Lagt fram erindi Steinmars H. Rögnvaldssonar dagsett 20. febrúar 2020, f.h. lóðarhafa Heiðartúns 5, þar sem óskað er eftir að heimilt verði að byggja 250 m² hús ásamt u.þ.b. 66 m² kjallara. Samkvæmt skilmálum deiliskipulags er heimilt að byggja 280 m² á lóðinni.
Þar sem fyrirhugað byggingarmagn umfram 280 m² er neðanjarðar telur skipulagsráð að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Er því ekki talin þörf á að breyta deiliskipulagi svæðisins, sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fylgiskjöl
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2020
Málsnúmer 2019120357Lögð fram til kynningar fundargerð 757. fundar, dagsett 6. febrúar 2020, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 5 liðum og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Afgreiðslur byggingarfulltrúa 2020
Málsnúmer 2019120357Lögð fram til kynningar fundargerð 758. fundar, dagsett 13. febrúar 2020, með fullnaðarafgreiðslum erinda. Fundargerðin er í 4 liðum og er að finna á heimasíðu Akureyrarbæjar.