Bæjarráð - 3640
29.05.2019
Hlusta
- Kl. 08:15 - 9:47
- Fundaaðstaða bæjarstjóra á 3. hæð Ráðhúss
- Fundur nr. 3640
Nefndarmenn
- Guðmundur Baldvin Guðmundssonformaður
- Halla Björk Reynisdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Gunnar Gíslason
- Hlynur Jóhannssonáheyrnarfulltrúi
- Sóley Björk Stefánsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Dan Jens Brynjarssonsviðsstjóri fjársýslusviðs
- Kristín Sóley Sigursveinsdóttirfundarritari
Hilda Jana Gísladóttir S-lista og varamaður hennar boðuðu forföll.
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2020-2023 - fjárhagsrammi
Málsnúmer 2019020276Lögð fram tillaga að fjárhagsramma vegna vinnu við gerð fjárhagsáætlunar.
Bæjarráð samþykkir framlagða tillögu að fjárhagsramma með 4 samhljóða atkvæðum. Fjárhagsramminn miðast við að rekstur A-hluta sé í jafnvægi en gert er ráð fyrir hagræðingarkröfu upp á 400 milljónir sem bæjarstjórn mun útfæra ásamt bæjarstjóra.
Fylgiskjöl
Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar 2019 - viðauki
Málsnúmer 2018050147Lagður fram viðauki 4.
Bæjarráð samþykkir framlagðan viðauka 4 með rekstrarútgjöld að upphæð 65,6 milljónir króna og fjárfestingar að upphæð 122,9 milljónir króna, með 4 samhljóða atkvæðum, og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.