Framkvæmdaráð - 339
- Kl. 09:30 - 12:32
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 339
Nefndarmenn
- Helena Þuríður Karlsdóttirvaraformaður
- Ingibjörg Ólöf Isaksen
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
- Jón Orri Guðjónsson
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður tæknideildar
- Jón Birgir Gunnlaugssonverkefnastjóri umhverfismála ritaði fundargerð
Naustahverfi, 6. áfangi - gatnagerð
Málsnúmer 2015020019Tekið fyrir erindi frá G.V. Gröfum ehf um kröfu vegna verðbóta í verkinu, Naustahverfi, 6. áfangi. Erindinu var áður hafnað.
Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson lögmaður mætti á fundinn.Framkvæmdaráð hafnar erindinu.
Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030
Málsnúmer 2015110092Skipulagsnefnd hefur óskað eftir umsögn framkvæmdaráðs við tillögu að Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030.
Bjarki Jóhannesson skipulagsstjóri mætti á fundinn og kynnti skipulagstillöguna.Framkvæmdaráð þakkar Bjarka kynninguna.
Skjaldarvík - beiðni um leigu á landi
Málsnúmer 2009110023Gerð grein fyrir viðræðum við landnotendur á beitarlandi í Skjaldarvík og kynnt samningsdrög um beitarlönd við Hestamannafélagið Létti.
Framkvæmdaráð felur starfsmönnum að ræða við samningsaðila á grundvelli breyttra samningsdraga og leggja fyrir ráðið á ný.
Ingibjörg Ólöf Isaksen vék af fundi kl 12:10.
Skjaldarvík - beiðni um leigu á landi
Málsnúmer 2016110063Erindi undirritað af Ólafi Aðalgeirssyni, f.h. Concept ehf, dagsett 7. nóvember 2016, þar sem óskað er eftir leigu á landi í Skjaldarvík.
Framkvæmdaráð felur starfsmönnum að ræða við bréfritara miðað við umræður á fundinum.
Fjárhagsáætlun 2017- framkvæmdadeild
Málsnúmer 2016080098Unnið að gerð framkvæmda- og starfsáætlunar fyrir árið 2017, 3ja ára áætlun áranna 2018-2020 og gjaldskrár kynntar.
Framkvæmdaráð samþykkir starfsáætlunina og gjaldskárnar.
Jón Orri Guðjónsson D-lista sat hjá við afgreiðslu gjaldskránna.Steinefni fyrir malbik 2016
Málsnúmer 2016040123Farið yfir og tekin ákvörðun um vinnslu á steinefnum fyrir malbik á árinu 2017.
Framkvæmdaráð samþykkir að framlengja samninginn fyrir árið 2017.