Skólanefnd - 3
- Kl. 13:30 - 15:26
- Naustaskóli
- Fundur nr. 3
Nefndarmenn
- Logi Már Einarssonformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Hanna Dögg Maronsdóttir
- Preben Jón Pétursson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirfræðslustjóri ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
Aðgerðarhópur um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar - nefndir og deildir
Málsnúmer 2016020127Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri og Magnús Kristjánsson frá KPMG komu á fundinn og fóru yfir tilurð aðgerðarhóps og vinnu í tengslum við hann.
Megintilgangur er að koma á betra jafnvægi í rekstri Akureyrarbæjar.Rekstur fræðslumála 2015
Málsnúmer 2015040087Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild fór yfir rekstur fræðslumála árið 2015.
Fagmenntun leikskólastarfsfólks
Málsnúmer 2016020119Sigurður Freyr Sigurðarson fulltrúi grunnskólakennara vék af fundi kl.14:55. <br />
Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi fór yfir fagmenntun leikskólastarfsfólks.
Hjallastefnan ehf - ósk um leiðréttingu á greiðslu vegna nýrra kjarasamninga og starfsmats
Málsnúmer 2010090049Lagt fram erindi dagsett 21. janúar 2016 frá Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur framkvæmdastjóra Hjallastefnunnar ehf þar sem hún óskar eftir að Akureyrarbær leiðrétti greiðslu til Hjallastefnunnar vegna breytinga á kjarasamningum og starfsmati.
Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild og Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi á skóladeild fóru yfir breytingarnar.
Skólanefnd samþykkir umbeðið erindi og óskar eftir viðbótarfjármagni frá bæjarráði vegna breytinga á nýjum kjarasamningum og starfsmati.
Hlíðaból leiðrétting vegna kjarasamnings 2015
Málsnúmer 2015050028Árni Konráð Bjarnason rekstrarstjóri á skóladeild og Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi á skóladeild fór yfir breytingar í kjölfar nýrra kjarasamninga og starfsmats.
Skólanefnd samþykkir umbeðið erindi og óskar eftir viðbótarfjármagni frá bæjarráði að upphæð. 3.748.500 kr. til Hlíðabóls vegna breytinga á nýjum kjarasamningum og starfsmati.