Öldungaráð - 13
21.01.2019
Hlusta
- Kl. 13:15 - 13:45
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 13
Nefndarmenn
- Sigríður Stefánsdóttirvaraformaður
- Halldór Gunnarsson
- Valgerður Jónsdóttir
- Guðmundur Baldvin Guðmundsson
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Dagbjört Elín Pálsdóttir boðaði forföll.
Guðmundur Baldvin Guðmundsson mætti í forföllum Gunnars Gíslasonar.
Sigríður Stefánsdóttir varamformaður setti fund í forföllum Dagbjartar.
Öldungaráð 2019 - samþykkt
Málsnúmer 2018120115Lögð fram til umræðu drög að samþykkt fyrir öldungaráð í samræmi við breytingar á 2. mgr. 38. gr. laga um félagsþjónustu nr. 40/1991 og breytingar á lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 20. desember sl. að senda drögin til öldungaráðs til umfjöllunar og óskar eftir viðbrögðum fyrir 14. janúar 2019.
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður mætti á fundinn.Öldungaráð samþykkir að óska eftir því að bæjarlögmanni verði falið að endurskoða samþykktina út frá þeim athugasemdum sem lagðar voru fram á fundinum og nýrrar samþykktar um Öldungaráð Reykjavíkurborgar.