Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar - 234
- Kl. 08:15 - 10:00
- Bæjarstjórnarsalur á 4. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 234
Nefndarmenn
- Oddur Helgi Halldórssonformaður
- Helgi Snæbjarnarson
- Hjörleifur H. Herbertsson
- Njáll Trausti Friðbertsson
- Sigfús Arnar Karlsson
- Bjarni Sigurðssonáheyrnarfulltrúi
- Guðgeir Hallur Heimissonáheyrnarfulltrúi
- Kristín Þóra Kjartansdóttiráheyrnarfulltrúi
- Guðni Helgason
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirfundarritari
Fjárhagsáætlun 2014 - Fasteignir Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2013090245Unnið að fjárhagsáætlanagerð.
Staða nýframkvæmda Fasteigna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2013100289Framkvæmdastjóri fór yfir stöðu nýframkvæmda hjá FA.
<DIV></DIV>
Hlíð - endurbóta- og viðhaldsáætlun
Málsnúmer 2013120023Lagt fram til kynningar erindi dags. 23. nóvember 2013 frá Halldóri Sigurði Guðmundssyni framkvæmdastjóra Öldrunarheimila Akureyrarbæjar um stofnun vinnuhóps um endurbótaáætlun í Hlíð.
<DIV><DIV><DIV> </DIV></DIV></DIV>
Lystigarður - kaffihús
Málsnúmer 2010110084Farið yfir stöðuna varðandi erindi dags. 30. október 2013 frá 1912 Veitingum ehf.\n\nÍ upphafi þessa dagskrárliðar vakti Njáll Trausti Friðbertsson D-lista á því athygli að hann teldi sig vanhæfan að fjalla um þennan lið. \nMeð vísan til 7. mgr. 20. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 var meint vanhæfi lagt upp til atkvæða fyrir stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar og var það samþykkt með 4 samhljóða atkvæðum. Hjörleifur Hallgríms Herbertsson L-lista sat hjá við atkvæðagreiðsluna.\nNjáll Trausti Friðbertsson D-lista vék af fundi við umræðu og yfirferð málsins.\n
Húsaleigusamningi milli Fasteigna Akureyrarbæjar, kt. 410169-6229 og 1912 Veitinga ehf, kt. 480805-0540, hefur nú verið slitið á grundvelli 3. og 11. greinar húsaleigusamningsins dags. 19. júlí 2011.Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar felur framkvæmdastjóra og bæjarlögmanni að ganga endanlega frá málum tengdum samningsslitum.Verkfundargerðir FA 2013
Málsnúmer 2013010321Eftirfarandi verkfundargerðir lagðar fram á fundinum:\nBorgargil 1 - G.Hjálmarsson: 1. og 2. verkfundur dags. 27. nóvember og 3. desember 2013.\nNaustaskóli 2. áfangi - SS Byggir ehf: 46. verkfundur dags. 19. nóvember 2013.\nÞórunnarstræti 99 - L og S verktakar: 12. og 13. verkfundur dags. 7. og 21. nóvember 2013.