Stjórn Akureyrarstofu - 97
- Kl. 19:30 - 21:00
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 97
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Jón Hjaltason
- Sigmundur Ófeigsson
- Jóhann Jónsson
- Sóley Björk Stefánsdóttir
- Hulda Sif Hermannsdóttir
- Þórgnýr Dýrfjörðfundarritari
Vorkoma stjórnar Akureyrarstofu 2011
Málsnúmer 2011040138Áfram haldið vinnu við undirbúning Vorkomunnar. Teknar voru ákvarðanir um viðurkenningar Húsverndarsjóðs og Menningarsjóðs Akureyrar, athafna- og nýsköpunarverðlaun stjórnar Akureyrarstofu og starfslaun listamanna til sex mánaða.\nSævar Pétursson verkefnisstjóri atvinnumála sat fundinn undir þessum lið að hluta.
<DIV>Niðurstöður stjórnarinnar verða gerðar kunnar á Vorkomu stjórnarinnar þann 12. maí nk.</DIV>
Hátíðir og viðburðir á Akureyri 2011
Málsnúmer 2011050022Farið yfir helstu hátíðir og stærri viðburði sem framundan eru á Akureyri og Akureyrarstofa kemur að með beinum og óbeinum hætti.
<DIV></DIV>
Atvinnumál - kaup Samherja á útgerðarfyrirtækinu Brimi
Málsnúmer 2011050024Fram hefur komið í fréttum að Samherji hefur keypt útgerðarfyrirtækið Brim og mun fyrirtækið í framtíðinni heita Útgerðarfélag Akureyringa.
Stjórn Akureyrarstofu fagnar kaupum Samherja á starfsemi Brims á Norðurlandi. Í sögulegu samhengi er endurvakning Útgerðarfélags Akureyringa eða ÚA hér í bæ einkar ánægjuleg og er það trú stjórnarinnar að með kaupunum standi rekstur fiskvinnslu í bænum á enn traustari grunni en áður.