Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 965
- Kl. 13:00 - 13:30
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 965
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Hjálmar Andrés Jónssonverkefnastjóri byggingarmála
- Rebekka Rut Þórhallsdóttirfundarritari
Hrísmói 11 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2024040551Erindi dagsett 11. apríl 2024 þar sem Fanney Hauksdóttir f.h. Kötlu ehf., sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir raðhúsi á lóðum nr. 11-17 við Hrísmóa. Innkomin gögn eftir Fanneyju Hauksdóttur.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Matthíasarhagi 2 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2024040571Erindi dagsett 11. apríl 2024 þar sem Valbjörn Ægir Vilhjálmsson f.h. Daða Jónssonar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi á tveimur hæðum á lóð nr. 2 við Matthíasarhaga. Innkomin gögn eftir Valbjörn Ægi Vilhjálmsson.
Byggingarfulltrúi frestar afgreiðslu með vísan til athugasemda í skoðunarskýrslu.
Eyrarlandsvegur 30 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2024040629Erindi dagsett 12. apríl 2024 þar sem Kári Magnússon f.h. Akureyrarbæjar sækir um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir gámahúsi með snyrtingum á lóð nr. 30 við Eyrarlandsveg. Innkomin gögn eftir Kára Magnússon.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Þórunnarstræti 106 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2024011410Erindi dagsett 23. apríl 2024 þar sem Rögnvaldur Harðarsson fyrir hönd Hrafnseyrar ehf., sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum fyrir fjölgun íbúða í húsi nr. 106 við Þórunnarstræti. Innkomnar nýjar teikningar eftir Rögnvald Harðarsson.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.