Fræðslu- og lýðheilsuráð - 63
- Kl. 13:00 - 15:00
- Golfskálinn að Jaðri
- Fundur nr. 63
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnasonformaður
- Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Inga Dís Sigurðardóttir
- Gunnar Már Gunnarsson
- Jón Hjaltason
- Ásrún Ýr Gestsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Kristín Jóhannesdóttirsviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs ritaði fundargerð
Fræðslu- og lýðheilsuráð - heimsókn í íþróttamannvirki
Málsnúmer 2022110690Steindór Ragnarsson framkvæmdarstóri og Jón Heiðar Sigurðsson skrifstofustjóri Golfklúbbs Akureyrar tóku á móti fræðslu- og lýðheilsuráði og sögðu frá starfsemi klúbbsins og sýndu ráðinu aðstöðu félagsins að Jaðri.
Áheyrnarfulltrúi: París Anna Bergmann fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar fulltrúum GA fyrir kynninguna.
Fjárhagsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs - gjaldskrár
Málsnúmer 2024090893Rætt um fjárhagsáætlun fræðslu- og lýðheilsusviðs og farið yfir drög að gjaldskrám sem taka eiga gildi 1. janúar 2025.
Áheyrnarfulltrúi: París Anna Bergmann fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheisluráð samþykkir með fjórum atkvæðum gjaldskrárnar fyrir sitt leyti og vísar þeim áfram til bæjarráðs.
Gunnar Már Gunnarsson B-lista sat hjá.Afrekssjóður Akureyrar
Málsnúmer 2024111438Samkvæmt 3.gr. samþykktar fyrir Afrekssjóð Akureyrarbæjar sitja fimm fulltrúar í stjórn sjóðsins, þrír frá ÍBA og fræðslu- og lýðheilsuráð skipar tvo fulltrúa og skal annar þeirra vera formaður fræðslu- og lýðheilsuráðs og er hann sjálfskipaður formaður stjórnar. Vegna breytinga í nefndum bæjarins þarf að skipa nýjan fulltrúa fræðslu- og lýðheilsuráðs í stjórn sjóðsins.
Áheyrnarfulltrúi: París Anna Bergmann fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð tilnefnir Ingu Dís Sigurðardóttur sem nýjan fulltrúa fræðslu- og lýðheilsuráðs í stjórn Afrekssjóðs.
Vetraríþróttamiðstöð Ísland (VMÍ)
Málsnúmer 2024111439Ellert Örn Ellertsson, forstöðumaður íþróttamála kynnti fyrirhugaðan vinnufund á vegum Vetraríþróttarmiðstöðvar Íslands (VMÍ) þann 4. desember næstkomandi. Markmið fundarins er að vinna drög að framtíðarsýn VMÍ og móta markmið fyrir næstu ár.
Áheyrnarfulltrúi: París Anna Bergmann fulltrúi ungmennaráðs.Lagt fram til kynningar.
Allir með, farsælt samfélag fyrir alla - samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ og ÍF
Málsnúmer 2023030395Ellert Örn Ellertsson, forstöðumaður íþróttamála sagði frá framgangi verkefnisins Allir með innan sveitarfélagsins.
Áheyrnarfulltrúi: París Anna Bergmann fulltrúi ungmennaráðs.
Lagt fram til kynningar.
Reglur um einstaklingsstuðning (áður félagsleg liðveisla) í Akureyrarbæ
Málsnúmer 2024100307Kristín Jóhannesdóttir sviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs kynnti nýjar verklagsreglur fræðslu- og lýðheilsusviðs um einstaklingsstuðning (sem áður hét félagsleg liðveisla) og lagði þær fram til samþykktar í ráðinu.
Birna Guðrún Baldursdóttir forstöðumaður tómstundamála sat fundinn undir þessum lið.
Áheyrnarfulltrúi: París Anna Bergmann fulltrúi ungmennaráðs.
Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir framlagðar reglur um einstaklingsstuðning og vísar þeim áfram til bæjarráðs.
Barnvænt sveitarfélag - gátlistar
Málsnúmer 2023091180Lagður fram gátlisti barnvæns sveitarfélags.
Fræðslu- og lýðheilsuráð vísar máli 4, 5 og 6 til kynningar í ungmennaráði.