Umhverfisnefnd - 103
- Kl. 10:00 - 11:35
- Kaffistofa framkvæmdadeild
- Fundur nr. 103
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Kristinn Frímann Árnason
- Ólafur Kjartanssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonforstöðumaður umhverfismála ritaði fundargerð
Kynjuð fjárhagsáætlanagerð
Málsnúmer 2011030090Greint frá námskeiði um kynjaða fjárhagsáætlanagerð, en meðal tilmæla þar var að taka málið á dagskrá fagnefnda og að horft yrði á myndband frá samtökum sveitarfélaga í Svíþjóð (https://www.youtube.com/watch?v=xYikioYiilU&feature=youtu.be), samhliða því að greina frá umræðum/verkefnum sem unnið var að á námskeiðinu.
Horft var á myndbandið og rætt um hugsanleg verkefni. Ákvörðun um verkefni verður tekin á næsta fundi.
Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs
Málsnúmer 2015040029Tekið fyrir erindi dagsett 26. mars 2015 frá verkefnisstjórn um svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs á Norðurlandi, þar sem óskað er eftir samþykki sveitarstjórnar um að verkefnisstjórninni verði falið að auglýsa svæðisáætlunardrögin fyrir hönd sveitarstjórnar í samræmi við ákvæði 6. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs með síðari breytingum og í samræmi við lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana. Jafnframt verði verkefnisstjórn falið að taka við athugasemdum sem berast á umsagnartíma.
Umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að fela verkefnisstjórninni að auglýsa áætlunina fyrir hönd sveitarfélagsins og að taka við athugasemdum sem berast á umsagnartíma.
Málinu vísað til bæjarstjórnar.Úrgangsmál - starfshópur
Málsnúmer 2014110224Áframhaldandi umræður um stöðu væntanlegra breytinga á fyrirkomulagi gámasvæðisins.
Ársfundur Umhverfisstofnunar 2015
Málsnúmer 2015030213Dagskrá ársfundar Umhverfisstofnunar kynnt.
Loftslagsráðstefnan í Randers 2015
Málsnúmer 2015040039Umræður um ráðstefnuna sem haldin verður í Randers.
Kortlagning hávaða - aðgerðaráætlun
Málsnúmer 2010010129Lögð fram aðgerðaráætlun gegn hávaða á Akureyri 2015-2020.
Umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti aðgerðaráætlunina og vísar henni til afgreiðslu bæjarstjórnar.