Umhverfis- og mannvirkjaráð - 79
- Kl. 08:15 - 11:15
- Fjarfundur
- Fundur nr. 79
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Unnar Jónsson
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Sigurjón Jóhannesson
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Ketill Sigurður Jóelssonverkefnastjóri ritaði fundargerð
Vegagerðin - samningur til stígauppbyggingar
Málsnúmer 2020060095Drög að samningi við Vegagerðina lagður fyrir ráðið varðandi uppbyggingu á stígakerfi á Akureyri.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð fagnar framlagi Vegagerðarinnar til þessa verkefnis.
Hagahverfi - blágrænar ofanvatnslausnir
Málsnúmer 2020040034Minnisblað dagsett 20. maí 2020 varðandi opnun tilboða í gerð blágrænna ofanvatnslausna lagt fyrir ráðið.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð hafnar tilboðum í verkið en samþykkir að ganga til viðræðna við lægstbjóðanda.
Austurbrú 10-12
Málsnúmer 2020060105Minnisblað dagsett 27. maí 2020 varðandi opnun tilboða í frágang á byggingargrunni að Austurbrú 10-12.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Nesbræðra ehf. enda samræmist kostnaðurinn þeirri upphæð sem haldið var eftir til þess að ganga frá svæðinu og samþykkt var á fundi skipulagsráðs þann 1. apríl 2020.
Hörgárbraut - stígur
Málsnúmer 2020060107Minnisblað varðandi útboð á gerð stígs meðfram Hörgárbraut frá Hraunholti að Hlíðarbraut.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að verkið verði boðið út.
Sandgerðisbót - stígur
Málsnúmer 2020060106Lagt fram minnisblað varðandi gerð stígs í Sandgerðisbót.
Jónas Valdimarsson verkefnastjóri hönnunar sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að verkið verði boðið út.
Sandgerðisbót - bygging íbúða
Málsnúmer 2020040029Lagt fram minnisblað dagsett 27. maí 2020 varðandi opnun tilboða í byggingu tveggja húsa í Sandgerðisbót.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir niðurstöðu dómnefndar og að gengið verði til samninga við SS Byggi ehf. um byggingu tveggja húsa í Sandgerðisbót.
Fylgiskjöl
Skátagil - leiksvæði
Málsnúmer 2020030625Lögð fram gögn varðandi leikvöll í göngugötunni við rót Skátagils og leiktæki sem staðsetja á á miðbæjarsvæðinu.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sátu fundinn undir þessum lið.Lundarskóli - framkvæmdir
Málsnúmer 2020020505Staðan á fyrirhuguðum framkvæmdum við Lundarskóla kynnt fyrir ráðinu.
Aksturssvæði við Hlíðarfjallsveg
Málsnúmer 2018120029Bréf frá stjórn KKA vegna umgengni á athafnasvæði þeirra lagt fram til kynningar.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sátu fundinn undir þessum lið.Skógræktarfélag Eyfirðinga - samningur
Málsnúmer 2019090381Lagt fram minnisblað dagsett 2. júní 2020 varðandi framlengingu á samningu við Skógræktarfélag Eyfirðinga.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir fyrir sitt leyti að framlengja samninginn við Skógræktarfélagið til tveggja ára með fyrirvara um fjárveitingu fyrir árin 2021 og 2022.
Moldarlosunarsvæði að Jaðri
Málsnúmer 2018010445Drög að samningi og verklagi vegna moldarlosunarsvæðis að Jaðri lögð fyrir ráðið.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir drögin með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum og með fyrirvara um að fjármagn í verkefnið fáist samþykkt.
Umhverfis- og mannvirkjaráð óskar eftir viðauka við bæjarráð að upphæð kr. 20.000.000.Jólatré 2020
Málsnúmer 2020060093Umræður um hvaða leið skuli farin varðandi jólatré fyrir jólin 2020.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð telur að þiggja eigi jólatrésgjöf frá Randers í Danmörku.
Sláttur 2020
Málsnúmer 2020030732Þjónustustig í slætti á Akureyri sumarið 2020 lagt fram til kynningar.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sátu fundinn undir þessum lið.Aðgerðaráætlun - skógarkerfill, alaskalúpína og bjarnarkló
Málsnúmer 2019060103Lagt fram minnisblað dagsett 3. júní 2020 varðandi heftingu útbreiðslu á ágengum plöntum í bæjarlandinu.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfismála og Rut Jónsdóttir forstöðumaður umhverfis- og sorpmála sátu fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að óska eftir viðauka til bæjarráðs að upphæð kr. 8.000.000.