Fræðslu- og lýðheilsuráð - 30
- Kl. 13:00 - 14:30
- Fundarsalur 1. hæð Glerárgötu 26
- Fundur nr. 30
Nefndarmenn
- Heimir Örn Árnasonformaður
- Hulda Elma Eysteinsdóttir
- Bjarney Sigurðardóttir
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Tinna Guðmundsdóttir
- Ásrún Ýr Gestsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Ísak Már Jóhannesson
Starfsmenn
- Kristín Jóhannesdóttirsviðsstjóri fræðslu- og lýðheilsusviðs
- Alfa Aradóttirforstöðumaður forvarna- og æskulýðsmála
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- Bjarki Ármann Oddssonforstöðumaður skrifstofu ritaði fundargerð
- Ellert Örn Erlingssonforstöðumaður íþróttamála
- Erna Rós Ingvarsdóttirverkefnastjóri leikskóla
- Sylvía Dögg Hjörleifsdóttirverkefnastjóri grunnskóla
Íþróttafélagið Þór - beiðni um búnaðarkaup
Málsnúmer 2023031125Tekið fyrir að nýju erindi dagsett 21. mars 2023 frá Reimari Helgasyni framkvæmdastjóra Þórs þar sem óskað er eftir kaupum á sláttuvél á íþróttasvæði Þórs. Erindið var áður á dagskrá 27. mars 2023.
Reimar Helgason framkvæmdastjóri Þórs sat fundinn undir þessum lið.
Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir framkvæmdastjóri ÍBA og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð óskar eftir því við umhverfis- og mannvirkjasvið að kaupa sláttuvél samanber óskir félagsins til notkunar á félagssvæði Þórs og samþykkir jafnhliða að bera lausafjárleigu vegna búnaðarkaupanna.
Íþróttafélagið Þór - beiðni um samningaviðræður
Málsnúmer 2023031752Erindi dagsett 28. mars 2023 frá Reimari Helgasyni framkvæmdarstjóra Þórs þar sem óskað er eftir að hefja formlegar samningaviðræður við Akureyrarbæ um framtíðaruppbyggingu og skipulag á íþróttasvæði Þórs.
Reimar Helgason framkvæmdarstjóri Þórs sat fundinn undir þessum lið.
Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir framkvæmdastjóri ÍBA og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar Reimari Helgasyni fyrir komuna. Ráðið felur formanni fræðslu- og lýðheilsuráðs að boða til fundar með Íþróttafélaginu Þór.
Siglingaklúbburinn Nökkvi - styrkur vegna búnaðar
Málsnúmer 2023040488Erindi dagsett 13. apríl 2023 frá Tryggva Heimissyni formanni Siglingaklúbbsins Nökkva þar sem óskað er eftir styrk til að sinna viðhaldsvinnu á öryggis- og kennslubát félagsins.
Áheyrnarfulltrúar: Helga Björg Ingvadóttir framkvæmdastjóri ÍBA og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð þakkar Siglingaklúbbnum Nökkva fyrir erindið. Ráðið tekur vel í beiðnina og samþykkir að styrkja félagið um 380.000 kr. fyrir öryggis- og kennslubát félagsins.
Búnaðarkaup í sal í Rósenborg
Málsnúmer 2022080964Lagt fram minnisblað forstöðumanns forvarna- og frístundamála og forstöðumanns skrifstofu en óskað er eftir samþykki fræðslu- og lýðheilsuráðs til að sækja um í búnaðarsjóð UMSA fyrir 4. hæðina í Rósenborg.
Áheyrnarfulltrúi: Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð sækir um 2,4 m.kr. í búnaðarsjóð umhverfis- og mannvirkjasviðs og samþykkir jafnframt að bera lausafjárleigu vegna kaupanna.
Skóladagatal leik- og grunnskóla fyrir skólaárið 2023-2024
Málsnúmer 2023020909Skóladagatal grunnskóla Akureyrarbæjar lagt fram til samþykktar.
Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara, Hafdís Erna Ásbjarnardóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir fyrirliggjandi skóladagatal.
Ósk um breytingu á skóladagatali
Málsnúmer 2023040645Ósk um breytingu á skóladagatali Lundarskóla vegna námsferðar starfsmanna skólans.
Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara, Hafdís Erna Ásbjarnardóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir erindið.
Ósk um breytingu á skóladagatali
Málsnúmer 2023040666Ósk um breytingu á skóladagatali Brekkuskóla vegna skipulagsdags starfsmanna skólans.
Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara, Hafdís Erna Ásbjarnardóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð samþykkir erindið.
Valfrjálsir dagar í leikskólum
Málsnúmer 2023040631Lagt fram til kynningar minnisblað um valfrjálsa daga í leikskólum Akureyrarbæjar.
Áheyrnarfulltrúar: Björg Sigurvinsdóttir fulltrúi leikskólastjóra, Daníel Sigurður Eðvaldsson fulltrúi foreldra grunnskólabarna, Ingi Jóhann Friðjónsson fulltrúi leikskólakennara, Hafdís Erna Ásbjarnardóttir fulltrúi foreldra leikskólabarna og Telma Ósk Þórhallsdóttir fulltrúi ungmennaráðs.Fræðslu- og lýðheilsuráð tekur vel í hugmyndina um að taka upp valfrjálsa daga frá og með ágúst 2023 og vísar erindinu til bæjarráðs.