Stjórn Hlíðarfjalls - 7
- Kl. 12:30 - 13:45
- Fjarfundur
- Fundur nr. 7
Nefndarmenn
- Halla Björk Reynisdóttirformaður
- Andri Teitsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Hlíðarfjall - framtíðarstarfsemi og rekstur
Málsnúmer 2020061017Lagt fram minnisblað dagsett 29. september 2020 frá Brynju Björgu Halldórsdóttur f.h. Ríkiskaupa vegna úthýsingar á rekstri Hlíðarfjalls.
Stjórn Hlíðarfjalls felur starfsmönnun að vinna áfram gögn í málinu þannig að hægt sé að bjóða reksturinn út strax á nýju ári og nýir rekstraraðilar taki við á vormánuðum.
Hlíðarfjall - gjaldskrá
Málsnúmer 2020090392Umræða um gjaldskrármál Hlíðarfjalls.
Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir fyrir sitt leyti breytingar á gjaldskrá. Stjórnin leggur til vegna COVID að veittur verði í vetur 50% afsláttur af vetrarkortum fyrir börn þannig að öll vetrarkort barna verði á 7.000 kr. Stjórn Hlíðarfjalls vísar gjaldskránni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Beiðni um samstarf vegna sölu á lyftukortum í Hlíðarfjall
Málsnúmer 2020090436Erindi dagsett 13. september 2020 frá Sigrúnu Huldu Sigmundsdóttur hótelstjóra Icelandair Hotels á Akureyri þar sem óskað er eftir samstarfi um sölu á lyftukortum í Hlíðarfjall.
Stjórn Hlíðarfjalls getur ekki orðið við erindinu en felur formanni og sviðsstjóra samfélagssviðs að ræða við bréfritara um samstarf á breiðari grunni.
Skíðafélag Akureyrar - samningur vegna aðstöðu
Málsnúmer 2019110186Samningur við Skíðafélag Akureyrar lagður fram til kynningar.
Stjórn Hlíðarfjalls samþykkir að fela sviðsstjóra samfélagssviðs að fara yfir samninginn með SKA.
Hlíðarfjall - rekstur 2020
Málsnúmer 2020020385Lagt fram minnisblað frá Stefáni Gunnarssyni starfandi forstöðumanni Hlíðarfjalls ásamt upplýsingum um 8 mánaða stöðu.
Fylgiskjöl
Zalibuna ehf - umsókn um afnot af aðstöðunni í Hlíðarfjalli
Málsnúmer 2014090022Farið yfir samningsdrög við Zalibunu ehf.
Stjórn Hlíðarfjalls telur verkefnið áhugavert og felur sviðsstjóra samfélagssviðs að halda samtalinu áfram við forsvarsmenn Zalibunu.