Fræðsluráð - 26
- Kl. 13:30 - 15:45
- Oddeyrarskóli
- Fundur nr. 26
Nefndarmenn
- Ingibjörg Ólöf Isaksenformaður
- Þorlákur Axel Jónsson
- Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir
- Rósa Njálsdóttir
- Berglind Ósk Guðmundsdóttir
- Þuríður Sólveig Árnadóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Anna Lilja Sævarsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Atli Þór Ragnarssonfulltrúi foreldra leikskólabarna
- Bryndís Valgarðsdóttirfulltrúi skólastjóra
- Hildur Lilja Jónsdóttirfulltrúi ungmennaráðs
- Jóhann Gunnarssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- María Aðalsteinsdóttirfulltrúi grunnskólakennara
- Hafdís Ólafsdóttirfulltrúi leikskólakennara
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
Leiðbeinandi reglur um myndatökur í leik- og grunnskólum
Málsnúmer 2020020115Berglind Ósk Guðmundsdóttir D-lista mætti í forföllum Þórhalls Harðarsonar. <br />
Inga Þöll Þórgnýsdóttir bæjarlögmaður kom á fundinn og kynnti leiðbeinandi reglur um myndatökur í leik- og grunnskólum.
Gjaldskrá dagforeldra og niðurgreiðslur til foreldra
Málsnúmer 2018040176Kynntar breytingar á gjaldskrá dagforeldra 1. janúar 2020, 1. febrúar 2020 og 1. apríl 2020.
Við ákvörðun gjaldskrár Akureyrarbæjar fyrir árið 2020 var gengið út frá 2,5% hækkun frá 1. janúar 2020 samkvæmt Lífskjarasamningi. Í ljósi þess að illframkvæmanlegt er að hækka hlut foreldra afturvirkt, tekur Akureyrarbær á sig alla hækkun frá 1. janúar til 31. mars, en gjaldskrá foreldra hækkar frá 1. apríl 2020 um 2,5%. Kostnaður foreldra við gjaldskrárhækkun miðað við hærra gjaldið fer því úr 28.256 kr. í 28.960 kr. miðað við 8 klst. dvalartíma án matarkostnaðar og lægra gjaldið fer úr 17.688 kr. í 18.128 kr. miðað við sama dvalartíma. Það skal tekið fram að leikskólagjaldið fyrir 8 klst. dvalartíma er nokkru hærra eða 29.872 kr. og 19.912 kr.
Áætlaður kostnaðarauki á árinu 2020 fyrir Akureyrarbæ vegna þessara hækkana er á bilinu 13-15 m.kr. Við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2020 er ekki áætlað fyrir breytingum vegna væntanlegra kjarasamninga.
Meirihluti fræðsluráðs samþykkir gjaldskrárhækkun á hlut foreldra um 2,5% frá 1. apríl 2020 og vísar til bæjarráðs.
Ekki er óskað eftir viðauka að svo stöddu.
Gjaldskráin var samþykkt með þremur atkvæðum meirihluta fræðsluráðs.
Berglind Ósk Guðmundsdóttir D-lista og Rósa Njálsdóttir M-lista sátu hjá.
Búnaðarkaup í leik-, grunn- og tónlistarskóla árið 2020
Málsnúmer 2020020408Forstöðumaður rekstrar gerði grein fyrir tillögu um búnaðarkaup í leik-, grunn- og tónlistarskóla árið 2020.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og greiðslu á lausafjárleigu vegna kaupanna og vísar afgreiðslu til umhverfis- og mannvirkjaráðs. Jafnframt hvetur fræðsluráð skólastjórnendur til að huga að fjölbreyttu námsumhverfi, takmarkaðri kyrrsetu og ólíkum þörfum nemenda þegar skipulögð eru búnaðarkaup í kennslustofur, s.s. dýnur á gólf eða borð til að standa við.
Þuríður S. Árnadóttir fulltrúi VG gerir eftirfarandi bókun varðandi úthlutun til búnaðarkaupa í leik-, grunn- og tónlistarskóla árið 2020.
Þegar endurnýja á stóla og borð í kennslustofum skal horft til nýrra þátta; keypt sé hækkanleg borð fyrir 2/3 nemenda, stólar fyrir 1/3 nemenda, sófar og dýnur fyrir 1/3. Auk þess verði keypt eitt þrekhjól, hengirúm ef góðar festingar eru fyrir hendi og eitt lítið trampolín.
Nútímavæðing í skólum
Málsnúmer 2017080076Forstöðumaður rekstrar kynnti tillögu að skiptingu fjármuna vegna nútímavæðingar skólanna fyrir árið 2020.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um skiptingu fjármagns til þróunar skólastarfs í leik- og grunnskólum.
Fyrirspurn um eingreiðslu til dagforeldra
Málsnúmer 2020020428Erindi frá Dagvistun félagi dagforeldra á Akureyri dagsett 12. febrúar 2020 með ósk um að þau fái greiddar afturvirkar hækkanir (eingreiðslu) sem eru hluti af nýsamþykktum kjarasamningi Starfsgreinasambandsins/Einingar-Iðju við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Fræðsluráð hafnar erindinu.
Dagforeldrar eru verktakar og því ekki aðilar að umræddum kjarasamningi.Skólaheimsóknir fræðsluráðs 2019-2022
Málsnúmer 2019110081Anna Bergrós Arnarsdóttir skólastjóri, Rannveig Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri, Fjóla Kristín Helgadóttir deildarstjóri, Oliwia Moranska nemandi í 10. bekk og Þura Björgvinsdóttir nemandi í 10. bekk komu á fundinn og kynntu starf Oddeyrarskóla.