Ungmennaráð - 32
- Kl. 16:00 - 18:00
- Íþróttahöllin
- Fundur nr. 32
Nefndarmenn
- Alexía Lind Ársælsdóttir
- Anton Bjarni Bjarkason
- Ásta Sóley Hauksdóttir
- Elva Sól Káradóttir
- Fríða Björg Tómasdóttir
- Lilja Dögun Lúðvíksdóttir
- Stormur Karlsson
- Telma Ósk Þórhallsdóttir
- Þór Reykjalín Jóhannesson
- Freyja Dögg Ágústudóttir
Starfsmenn
- Karen Nóadóttirverkefnastjóri
- Arnar Már Bjarnasonforvarna- og félagsmálafulltrúi
- Hafsteinn Þórðarsonfundarritari
Ungmennaráð - breytingar í nefndum og kosning áheyrnarfulltrúa 2022
Málsnúmer 2022030297Farið var yfir stöðu mála er varða kosningar í ungmennaráð.
Ungmennaskiptaverkefni 2022
Málsnúmer 2022080054Farið var yfir næstu skref varðandi ungmennaskiptaverkefni Erasmus. Fyrirhuguð er ferð til Litháen í ágúst 2023. Laus sæti fyrir tíu ungmenni.
Samningur um fræðslu
Málsnúmer 2022100497Fræðslu- og lýðheilsuráðs sendi til umsagnar drög að samningi við Samtökin'78 um fræðslu til starfsfólks leik- og grunnskóla, nemenda grunnskóla, fræðslu til stjórnenda, ráðgjöf, fræðslu til félags- og frístundamiðstöðva og fræðslu til þjálfara íþróttafélaga. Ungmennaráð fór yfir drögin og sendi frá sér bókun.
Ungmennaráð Akureyrar þakkar fræðslu- og lýðheilsuráði fyrir erindið. Ungmennaráðið tekur vel í erindið og fyrir það sem það stendur fyrir. Málefnið er gríðarlega mikilvægur hluti í samfélagslegum þroska barna og telur ungmennaráð það að fá utanaðkomandi aðila með sérfræðiþekkingu á þessu sviði sé góð ákvörðun. Ungmennaráð ítrekar mikilvægi þess að fræðslan verði sett fram á barnvænan hátt og virki þátttöku barna.