Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 941
16.11.2023
Hlusta
- Kl. 13:00 - 14:00
- Skrifstofa byggingarfulltrúa
- Fundur nr. 941
Nefndarmenn
- Steinmar Heiðar Rögnvaldssonbyggingarfulltrúi
Starfsmenn
- Arnar Ólafssonverkefnastjóri byggingarmála
- Hjálmar Árnasonfundarritari
Oddeyrarbót 1 - umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer 2023061408Erindi dagsett 9. nóvember 2023 þar sem Hugrún Þorsteinsdóttir fyrir hönd Kela Seatours ehf. sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum á lóð nr. 1 við Oddeyrarbót. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Hugrúnu Þorsteinsdóttur.
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.
Strandgata 23 - umsókn um breytta notkun íbúðar
Málsnúmer 2023101469Erindi dagsett 31. október 2023 þar sem Þorsteinn Marinósson sækir um breytta notkun íbúðar 0101 í húsi nr. 23 við Strandgötu úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði .
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið.