Stjórn Akureyrarstofu - 281
- Kl. 14:00 - 17:20
- Rósenborg - fundarsalur 3. hæð
- Fundur nr. 281
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Finnur Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Listasafnið á Akureyri - útboð á rekstri kaffihúss
Málsnúmer 2018010273Hlynur Hallsson safnstjóri Listasafnsins mætti á fundinn og gerði grein fyrir stöðu mála er lýtur að rekstri kaffihúss í Listasafninu.
Stjórn Akureyrarstofu þakkar Hlyni fyrir framlagðar upplýsingar og leggur áherslu á að fundinn verði nýr rekstraraðili að kaffihúsi í Listasafninu.
Listasafnið á Akureyri
Málsnúmer 2015060091Lagðar fram rekstrar- og aðsóknartölur að Listasafninu fyrstu fimm mánuði ársins. Hlynur Hallsson safnstjóri mætti á fundinn undir þessum lið.
Stjórn Akureyrarstofu telur mikilvægt að safnstjóri og sviðsstjóri leggi fram tillögu til stjórnar um með hvaða hætti brugðist verði við neikvæðum rekstri miðað við áætlun fyrstu fimm mánuði ársins. Þá felur stjórn safnstjóra að leggja fram minnisblað til stjórnar um framkvæmdir við safnið og verklok þannig að hægt verði að fá inn tekjur af útleigu og í framhaldinu verði fundað með sviðsstjóra umhverfis- og mannvirkjasviðs.
Ferðamálafélag Hríseyjar - samstarfssamningur
Málsnúmer 2019060260Drög að nýjum samstarfssamningi við Ferðamálafélag Hríseyjar lagður fram til umræðu.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að gera eins árs samstarfssamning að svo stöddu að upphæð kr. 600.000.
Flugklasi - samstarf um millilandaflug til Norðurlands
Málsnúmer 2011060107Erindi dagsett 31. maí 2019 frá Hjalta Páli Þórarinssyni f.h. Markaðsstofu Norðurlands þar sem óskað er áframhaldandi fjárstuðnings við verkefnið Flugklasinn Air 66N.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að gerður verði árs samningur við Markaðsstofu Norðurlands vegna Air 66N og felur sviðsstjóra að ganga frá samningnum til undirritunar.
Ungmennafélag Akureyrar - Akureyrarhlaup
Málsnúmer 2014060143Erindi dagsett 15. maí 2019 frá Rannveigu Oddsdóttur formanni Akureyrarhlaupsnefndar UFA þar sem óskað er eftir kr. 200.000 styrk vegna Akureyrarhlaupsins 4. júlí nk.
Stjórn Akureyrarstofu samþykkir að styrkja UFA um kr. 100.000 vegna hlaupsins.
Minjasafnið á Akureyri - ársreikningur 2018
Málsnúmer 2019060258Ársreikningur Minjasafnsins fyrir árið 2018 lagður fram til kynningar.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2020
Málsnúmer 2019050308Umræða um starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2020.
Finnur Sigurðsson vék af fundi kl. 17:10.Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2019
Málsnúmer 2019020025Lagt fram til kynningar rekstraryfirlit fyrir fyrstu fimm mánuði ársins 2019
Fundargerðir AFE
Málsnúmer 2019040049Fundargerðir stjórnar AFE nr. 231 og 232 lagðar fram til kynningar.