Umhverfis- og mannvirkjaráð - 28
- Kl. 08:15 - 10:45
- Fundarherbergi FAK
- Fundur nr. 28
Nefndarmenn
- Eiríkur Jónssonvaraformaður
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Gunnar Gíslason
- Sæbjörg Sylvía Kristinsdóttir
- Þorsteinn Hlynur Jónsson
- Hermann Ingi Arasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Dóra Sif Sigtryggsdóttirforstöðumaður rekstrardeildar ritaði fundargerð
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Hildigunnur Rut Jónsdóttirforstöðumaður umhverfis- og sorpdeildar
Compact of Mayors - verkefni umhverfis- og mannvirkjasviðs
Málsnúmer 2018020409Lagt fram erindi dagsett 18. janúar 2018 frá Vistorku ehf vegna kolefnishlutlausrar Akureyri og þátttöku Akureyrarkaupstaðar í Compact of Mayors.
Guðmundur Haukur Sigurðsson framkvæmdastjóri Vistorku ehf mætti á fundinn og fór yfir málið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að hefja vinnu við verkefnið og felur forstöðumanni umhverfis- og sorpmála að vinna áfram að málinu og leggja kostnaðaráætlun fyrir ráðið á næsta fundi.
Festa og loftslagsmarkmið
Málsnúmer 2018020427Lögð fram kynning á FESTA Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja í loftslagsmálum og boð þess um aðild Akureyrarkaupstaðar.
Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að taka þátt í verkefninu.
AkvaFuture - 20.000 tonna laxeldi í lokuðum eldiskvíum í Eyjafirði - beiðni um umsögn
Málsnúmer 2018010406Tekið fyrir að nýju erindi dagsett 24. janúar 2018 frá Skipulagsstofnun þar sem kemur fram að AkvaFuture hafi sent Skipulagsstofnun tillögu að matsáætlun um 20.000 tonna laxeldi í lokuðum eldiskvíum í Eyjafirði. Óskað er eftir að Akureyrarbær gefi umsögn um tillöguna í samræmi við 2. mgr. 8. gr. laga nr. 106/2000 og 17. gr. reglugerðar nr. 660/2015 um mat á umhverfisáhrifum. Umsögn óskast send Skipulagsstofnun fyrir 12. febrúar 2018. Einnig lögð fram tillaga að umsögn dagsett 28. febrúar 2018 vegna málsins.
Umhverfis- og mannvirkjaráð felur formanni og forstöðumanni umhverfis- og sorpmála að ganga frá umsögninni í samræmi við framlögð gögn og senda til Skipulagsstofnunar.
Hermann Ingi Arason V-lista óskar bókað:
Allar hugmyndir um eldi sjávardýra hér við land þurfa að koma í kjölfar stefnumótunar og regluverks um framkvæmd slíks. Þar sem slíkt liggur ekki fyrir er ótímabært að hefja vinnu við mat á áhrifum mögulegs eldis á einstökum stöðum s.s. í Eyjafirði.Hreinsun gatna - útboð á götusópun 2018
Málsnúmer 2018020517Lagt fram minnisblað dagsett 1. mars 2018 vegna útboðsins.
Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að farið verði í útboð á götusópun til tveggja ára og felur umhverfis- og mannvirkjasviði að skoða áfram kaup á götusóp.
SVA - sala á strætisvagni
Málsnúmer 2018030022Lögð fram tilboð sem bárust í vagninn.
Umhverfis- og mannvirkjaráð hafnar tilboðunum.
Vegagerðin - niðurfelling vega af vegaskrá
Málsnúmer 2012080074Lagt fram svarbréf Vegagerðarinnar dagsett 23. febrúar 2018 vegna beiðni Akureyrarbæjar um breytingar á akstursleið á hafnasvæðið sem endar á Fiskitanga samkvæmt núgildandi vegalögum.
LED götulýsingarlampar - útboð
Málsnúmer 2016120069Lögð fram minnisblöð dagsett 23. og 26. febrúar 2018 um endurnýjun gatnalýsingar og gangbrautalýsingar.
Byrgi - kaup á húsnæði
Málsnúmer 2018020496Lagt fram til kynningar kauptilboð í húsið.
Rósenborg - endurbætur vegna stjórnsýslubreytinga
Málsnúmer 2017060095Lagt fram skilamat dagsett 28. febrúar 2018 vegna framkvæmdanna.
Glerárskóli - breytingar vegna 5 ára deildar
Málsnúmer 2017060090Lagt fram skilamat dagsett 28. febrúar 2018 vegna framkvæmdanna.
Rangárvallarstígur - framkvæmd
Málsnúmer 2017030078Lagt fram skilamat dagsett 1. mars 2018 fyrir framkvæmdina.