Fræðsluráð - 20
- Kl. 13:30 - 16:00
- Naustaskóli
- Fundur nr. 20
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Dagný Þóra Baldursdóttir
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Anna Rósa Magnúsdóttir
- Brynhildur Pétursdóttir
- Inga Elísabet Vésteinsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Soffía Vagnsdóttirsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
- Hrafnhildur G Sigurðardóttirleikskólafulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
Zankov stærðfræði - þróunarverkefni
Málsnúmer 2017110177Þóra Rósa Geirsdóttir sérfræðingur á miðstöð skólaþróunar HA kom á fundinn og kynnti Zankov stærðfræðina og sagði frá stærðfræðikönnun sem hún hyggst gera í 1.- 3. bekkjum tveggja skóla á Akureyri.
Fræðsluráð þakkar Þóru Rósu áhugaverða kynningu.
Hljóðvist í leikskólum - tilraunaverkefni
Málsnúmer 2015040233Hrafnhildur Sigurðardóttir leikskólafulltrúi kynnti helstu niðurstöður í tilraunaverkefni um hljóðvist í leikskólum.
Samstarfsnefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara - lokaskýrsla
Málsnúmer 2017110092Lögð fram til kynningar samantekt samstarfsnefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga og Félags grunnskólakennara á niðurstöðum í lokaskýrslum sveitarfélaga og umbótaáætlunum grunnskóla vegna úrvinnslu bókunar I með kjarasamningi aðila.
Frístundaráð - stefnumótun - íþróttastefna 2017
Málsnúmer 2017020033Frístundaráð Akureyrarbæjar óskar eftir umsögn hagsmunaaðila á drögum að nýrri íþróttastefnu Akureyrarbæjar og ÍBA.
Rætt.Gjaldskrár fræðslusviðs 2018
Málsnúmer 2017090102Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrardeildar fór yfir fyrirhugaðar breytingar á gjaldskrá vegna systkinaafsláttar.
Fræðsluráð samþykkir að leggja til að systkinaafsláttur í leik- og grunnskólum og hjá dagforeldrum verði hækkaður úr 30% í 50% af dvalargjaldi með öðru barni frá næstu áramótum.
Kostnaður vegna umræddra breytinga er áætlaður 16,5 milljónir króna vegna ársins 2018.
Fræðsluráð vísar tillögunni til afgreiðslu í bæjarráði.