Skólanefnd - 6
- Kl. 14:00 - 16:00
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 6
Nefndarmenn
- Preben Jón Péturssonformaður
- Anna Sjöfn Jónasdóttir
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Helgi Vilberg Hermannsson
- Sædís Gunnarsdóttir
- Áslaug Magnúsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hjörtur Narfasonáheyrnarfulltrúi
- Kristín Sigfúsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Kristín Jóhannesdóttirfulltrúi skólastjóra
- Lilja Þorkelsdóttirfulltrúi grunnskólakennara
- Heimir Eggerz Jóhannssonfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- varamaður foreldra leikskólabarna
- Karl Frímannssonfræðslustjóri ritaði fundargerð
Heimgreiðslur til foreldra
Málsnúmer 2013030105Fyrirspurn frá Agnesi Hörpu Jósavinsdóttur í viðtalstíma bæjarfulltrúa 28. febrúar 2013 um hvort bæjaryfirvöld gætu hugsað sér að bjóða upp á heimgreiðslur til foreldra í stað greiðslu til dagforeldra, eða bjóða upp á hvort tveggja.

Skólanefnd hefur ekki í hyggju að bjóða upp á þennan valmöguleika.

Skólanefnd þakkar Agnesi fyrir erindið.

Leikskólar - opnunartími
Málsnúmer 2013020191Birna Stefánsdóttir hringdi í viðtalstíma bæjarfulltrúa 14. febrúar 2013.\nEr ósátt við opnunartíma leikskóla. Er nýflutt í bæinn og segir opnunartíma henta afar illa fyrir fólk í fullu starfi. Spurðist fyrir um kostnað við aukatíma og er tilbúin að greiða hærra gjald fyrir lengri opnun.

Skólanefnd þakkar Birnu fyrir erindið.
Ákvörðun um opnunartíma er í höndum hvers leikskólastjóra og vísar skólanefnd erindinu á viðkomandi skólastjóra.

Lundarskóli - beiðni um skápa fyrir nemendur á unglingastigi
Málsnúmer 2013030046Beiðni frá nemendum á unglingastigi Lundarskóla um að settir verði skápar í skólann þar sem hver nemandi getur geymt töskur og annað í læstri hirslu.

Skólanefnd þakkar nemendum á unglingastigi í Lundarskóla fyrir erindið.

Skólastjóra Lundarskóla er falið að svara erindinu.

Naustaskóli og Naustatjörn - bílastæðamál
Málsnúmer 2013030106Stjórnendur Naustaskóla og Naustatjarnar óska eftir að skólanefnd taki til skoðunar og umræðu bílastæða- og aðgengismál við Naustaskóla og veiti aðstoð við að leita lausna á því ófremdarástandi sem er við stofnunina í þessum málum, en jafnframt tengist málið Naustatjörn þar sem stofnanirnar samnýta húsnæði að hluta.

Skólanefnd tekur heilshugar undir áhyggjur skólastjórnenda Naustaskóla og Naustatjarnar vegna bílastæða- og aðgengismála við skólana.

Formanni skólanefndar er falið að vinna áfram að málinu.

Skólavogin - kynning
Málsnúmer 2011020093Kynning á Skólavoginni sem hefur að geyma samanburð á viðhorfi nemenda, foreldra og kennara í grunnskólum, árangur nemenda og ýmsar rekstrarupplýsingar.\nMálið lagt fram til kynningar.

Tryggvi Þór Gunnarsson L-lista vék af fundi kl. 14:52.