Stjórn Akureyrarstofu - 268
- Kl. 17:00 - 19:50
- Strikið
- Fundur nr. 268
Nefndarmenn
- Hilda Jana Gísladóttirformaður
- Anna Hildur Guðmundsdóttir
- Sigfús Arnar Karlsson
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Finnur Sigurðsson
- Karl Liljendal Hólmgeirssonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðdeildarstjóri Akureyrarstofu
- Kristinn Jakob Reimarssonsviðsstjóri samfélagssviðs ritaði fundargerð
Upplýsingastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2015110167Ragnar Hólm Ragnarsson verkefnastjóri kynningarmála lagði fram upplýsingastefnu Akureyrarbæjar til samþykktar.
Kristín Sóley Sigursveinsdóttir forstöðumaður upplýsinga- og þjónustudeildar sat fundinn undir þessum lið.Stjórn Akureyrarstofu samþykkir framlögð drög að upplýsingastefnu að viðbættum þeim athugasemdum sem fram komu á fundinum og vísar henni til endanlegrar samþykktar hjá bæjarráði.
Listasafnið á Akureyri
Málsnúmer 2015060091Lagðar fram rekstrar- og aðsóknartölur fyrir Listasafnið á Akureyri.
Hlynur Hallsson safnstjóri sat fundinn undir þessum lið.Fylgiskjöl
Safnastefna Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2014110087Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu lagði fram drög að ramma fyrir mótun safnastefnu.
Deildarstjóra Akureyrarstofu falið að vinna málið áfram og leggja fram verkáætlun vegna vinnu við gerð safnastefnu á seinni fundi stjórnar í janúarmánuði 2019.
Stjórn Akureyrarstofu - rekstraryfirlit 2018
Málsnúmer 2018080040Lagt fram 10 mánaða rekstraruppgjör.
Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar Akureyrarstofu 2019
Málsnúmer 2018080874Farið yfir fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir árið 2019.
Starfshópur um aðkomu Akureyrarbæjar að listnámi
Málsnúmer 2018070485Þórgnýr Dýrfjörð deildarstjóri Akureyrarstofu gerði grein fyrir vinnu starfshóps um aðkomu Akureyrarbæjar að listnámi í bænum.
Stjórn Akureyrarstofu - fundaáætlun 2019
Málsnúmer 2018120145Fundaáætlun stjórnar Akureyrarstofu fyrstu sex mánuði ársins 2019 lögð fram til kynningar.