Stjórn Akureyrarstofu - 211
- Kl. 16:15 - 18:01
- Fundarherbergi Akureyrarstofu í menningarhúsinu Hofi
- Fundur nr. 211
Nefndarmenn
- Unnar Jónssonformaður
- Sigfús Arnar Karlsson
- Silja Dögg Baldursdóttir
- Eva Hrund Einarsdóttir
- Guðmundur Ármann Sigurjónsson
- Eva Dögg Fjölnisdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Þórgnýr Dýrfjörðframkvæmdastjóri Akureyrarstofu ritaði fundargerð
Breytingar á rekstri á húseignum sem tilheyra rekstri framkvæmdadeildar
Málsnúmer 2016030133Framkvæmdaráð hefur óskað eftir áliti stjórnar Akureyrarstofu á því að almenningssalernum undir kirkjutröppunum verið lokað.
Stjórn Akureyrarstofu gerir ekki athugasemd við að almenningssalernunum verði lokað enda sé notkun þeirra ekki mikil. Stjórnin mælir með að haft verði samráð við hagsmunaaðila á miðbæjarsvæðinu áður en endanleg ákvörðun verður tekin.
Upplýsingamiðstöð ferðamanna - framtíðarstaðsetning
Málsnúmer 2016060077Nú er í undirbúningi þarfagreining vegna nýrrar umferðamiðstöðvar sem gert er ráð fyrir í nýju miðbæjarskipulagi. Eitt af því sem komið hefur til umræðu í tengslum við þá vinnu er framtíðarstaðsetning upplýsingamiðstöðvarinnar sem nú er í Hofi.
Lagt fram til kynningar.
NOVU 2016 - norrænt vinabæjamót ungmenna í júní á Akureyri
Málsnúmer 2016010136Farið yfir dagskrá og undirbúning vegna vinabæjamótsins.
Laxdalshús - útleiga
Málsnúmer 2015010247Núverandi leigutakar hafa óskað eftir framlengingu á leigusamningi um Laxdalshús.
Stjórn Akureyrarstofu heimilar framkvæmdastjóra að framlengja fyrirliggjandi samning til eins árs eða 30. apríl 2017.