Afgreiðslufundur skipulagsstjóra - 608
- Kl. 13:00 - 14:00
- Fundarherbergi skipulagsdeild
- Fundur nr. 608
Nefndarmenn
- Bjarki Jóhannessonskipulagsstjóri
- Leifur Þorsteinsson
- Björn Jóhannsson
Starfsmenn
- Stefanía G Sigmundsdóttirfundarritari
Fjölnisgata 6e - fyrirspurn
Málsnúmer 2015030269Erindi dagsett 3. nóvember 2016 þar sem Steinmar Rögnvaldsson fyrir hönd Bjarkarness ehf., kt. 671107-0710, leggur inn fyrirspurn um uppsetningu á iðnaðarhurð á húsi nr. 6e við Fjölnisgötu. Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda fyrir hurðinni.
Skipulagsstjóri tekur jákvætt í erindið en mælst er til að útlit hurðar verði í samræmi við útlit í bili h. Sækja þarf um byggingarleyfi ásamt aðaluppdráttum.
Langholt 16 - fyrirspurn
Málsnúmer 2016110048Erindi dagsett 4. nóvember 2016 þar sem Friðþór Smárason leggur inn fyrirspurn um breytta skráningu á bílskúr sem er skráður sem verslun, verði skráður sem íbúðarrými.
Skipulagsstjóri hafnar erindinu þar sem lofthæð í núverandi bílgeymslu leyfir ekki innréttingu íbúðarrýmis. Þar sem ekki er verslun í rýminu verður skráningu breytt í bílgeymslu sbr. samþykktar teikningar.
Grænamýri 3 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 2016090149Erindi dagsett 7. nóvember 2016 þar sem Þórir Guðmundsson fyrir hönd Harrys Ólafssonar og Ásdísar Ívarsdóttur sækir um byggingarleyfi fyrir breytingum á þaki á húsi nr. 3 við Grænumýri. Innkomnar nýjar teikningar eftir Þóri Guðmundsson.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Strandgata 149566 - Oddeyrarskáli - breytingar innanhúss
Málsnúmer 2016100162Erindi dagsett 18. október 2016 þar sem Garðar Halldórsson fyrir hönd Eimskip Ísland ehf., kt. 421104-3520, sækir um leyfi til að breyta skipulagi starfsmannaaðstöðu í Strandgötu lnr. 149566 - Oddeyrarskáli. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Garðar Halldórsson. Innkomnar nýjar teikningar 8. nóvember 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Glerárgata 32 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2016070123Erindi dagsett 3. nóvember 2016 þar sem Haraldur S. Árnason fyrir hönd G32 fasteigna ehf., kt. 590516-0140, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af viðbyggingu við Glerárgötu 32. Meðfylgjandi eru teikningar eftir Harald S. Árnason.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Skipagata 5 - umsókn um breytingar
Málsnúmer 2012121091Erindi dagsett 19. október 2016 þar sem Anton Örn Brynjarsson fyrir hönd Grand ehf., kt. 670295-3119, sækir um breytingar á áður samþykktum teikningum af Skipagötu 5. Um er að ræða breytingu á fyrirhugaðri notkun 1. hæðar úr veitingahúsi í verslun. Meðfylgjandi er gátlisti og teikningar eftir Fanneyju Hauksdóttur. Innkomnar teikningar 31. október 2016.
Skipulagsstjóri samþykkir erindið.
Helgamagrastræti 15 - umsókn um bílastæði
Málsnúmer 2016110049Erindi dagsett 4. nóvember 2016 þar sem Ásgeir Högnason og Sigurlaug Indriðadóttir sækja um að gera bílastæði á norðurhluta lóðarinnar nr. 15 við Helgamagrastræti. Meðfylgjandi er mynd.
Skipulagsstjóri frestar erindinu þar sem vinnureglur um bílastæði og úrtök á kantsteini eru í vinnslu. Jafnframt óskar embættið eftir skriflegu samþykki meðeigenda í húsinu.