Umhverfisnefnd - 121
- Kl. 10:00 - 11:26
- Fundarsalur á 2. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 121
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Óskar Ingi Sigurðsson
- Kristján Ingimar Ragnarsson
- Anna Rósa Magnúsdóttir
- Áshildur Hlín Valtýsdóttir
- Jóhannes Árnasonáheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Helgi Már Pálssonbæjartæknifræðingur
- Jón Birgir Gunnlaugssonverkefnastjóri umhverfismála ritaði fundargerð
Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030
Málsnúmer 2015110092Skipulagsnefnd hefur óskað eftir umsögn um tillögur skipulagsstjóra að Aðalskipulagi Akureyrar 2018-2030. Seinni umræða í umhverfisnefnd.
Umhverfisnefnd felur starfsmönnum að koma athugasemdum nefndarinnar á framfæri við skipulagsnefnd.
Glerárdalur - leyfi fyrir þyrluskíðaferðum í fólkvanginum
Málsnúmer 2016120037Tekið fyrir ódagsett erindi frá Jökli Bergmann fyrir hönd Arctic heliskiing þar sem hann óskar eftir undanþágu til þyrluflugs í fólkvangnum á Glerárdal.
Umhverfisnefnd vísar bréfritara á að sækja um undanþágu til Umhverfisstofnunar þar sem svæðið er friðlýst sem fólkvangur.
Skógræktarfélag Íslands - erindi frá Yrkjusjóði
Málsnúmer 2015020054Tekið fyrir erindi dagsett 22. nóvember 2016 frá Yrkjusjóði þar sem óskað er eftir styrk að lágmarki kr. 150.000 til kaupa á trjáplöntum sem árlega er úthlutað til grunnskólabarna á árinu 2017.
Umhverfisnefnd samþykkir að styrkja Yrkjusjóð um kr. 150.000 á árinu 2017. Umhverfisnefnd hvetur grunnskóla bæjarins til að sækja um trjáplöntur til útplöntunar í skógræktarsvæði bæjarins.
Umhverfis- og samgöngustefna
Málsnúmer 2015010196Farið yfir stöðu vinnunnar við gerð stefnunnar.
Plastpokalaus Akureyri - fjölnotapokar
Málsnúmer 2016110041Framhaldsumræður um plastpokalausa Akureyri og fjölnota innkaupapoka.
Umhverfisnefnd felur starfsmönnum að undirbúa kaup á fjölnota pokum í byrjun árs 2017.
Lausaganga katta á Akureyri
Málsnúmer 2016110045Umræður um lausagöngu katta í bæjarlandinu.
Umhverfisnefnd óskar eftir því að nýtt umhverfis- og mannvirkjasvið taki til endurskoðunar samþykkt um kattahald á Akureyri.
Önnur mál í umhverfisnefnd 2016
Málsnúmer 2016080072Kynning á flokkunartunnum í miðbæ.
Umhverfisnefnd fagnar því að flokkunartunnur verði settar upp í miðbænum á næstu dögum.