Umhverfis- og mannvirkjaráð - 59
- Kl. 08:15 - 10:00
- Fundarsalur á 1. hæð í Ráðhúsi
- Fundur nr. 59
Nefndarmenn
- Andri Teitssonformaður
- Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir
- Unnar Jónsson
- Gunnar Gíslason
- Berglind Bergvinsdóttir
- Jana Salóme I. Jósepsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Guðríður Friðriksdóttirsviðsstjóri umhverfis- og mannvirkjasviðs
- Tómas Björn Haukssonforstöðumaður nýframkvæmda
- Guðný Skúladóttirfundarritari
Brýr yfir Eyjafjarðará
Málsnúmer 2017120110Staða verkefnisins kynnt.
Hrafn Svavarsson rekstarstjóri SVA sat fundinn undir þessum lið.SVA - sala auglýsinga á strætisvagna í eigu Akureyrarbæjar
Málsnúmer 2017020079Teknar fyrir reglur varðandi auglýsingar á strætisvögnum Akureyrarbæjar.
Hrafn Svavarsson rekstarstjóri SVA sat fundinn undir þessum lið.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að opna fyrir að einkaaðilar kaupi auglýsingar á strætisvagna og biðskýli enda standist það að öðru leyti samþykktar reglur um auglýsingar á strætisvagna Akureyrarbæjar.
Umhverfismiðstöð - staðan 2019
Málsnúmer 2019060633Farið yfir stöðuna á Umhverfismiðstöð, starfsfólk og rekstur.
Hrafn Svavarsson rekstarstjóri SVA sat fundinn undir þessum lið.Grímsey og Hrísey - ráðstöfun fjármuna
Málsnúmer 2019060634Jón Birgir Gunnlaugsson verkefnastjóri umhverfis- og sorpmála fór yfir ráðstöfun fjármuna sem ákveðið var að hverfisráðin í Hrísey og Grímsey fengju til ráðstöfunar í framkvæmdir.
Endurbætur á bílaplani Hjalteyrargötu 12 - styrkur
Málsnúmer 2019070147Björgunarsveitin Súlur óskar eftir að Akureyrarbær komi að framkvæmd við bílaplan við Hjalteyrargötu 12.
Á sínum tíma, þegar aðkoman sunnan og vestan við húsið var lagfærð kom Akureyrarbær til móts við Súlur með myndarlegum hætti, ekki í formi peningastyrks heldur með vinnuframlagi og efni. Í meðfylgjandi kostnaðaráætlun kemur fram að fínjöfnun og malbikun er stór hluti af kostnaði þessa verks og þess er því hér með óskað að Akureyrarbær styrki Súlur á sama máta og seinast, með því að leggja til efni og vinnu við ofangreinda verkþætti auk uppsteypu kantsteina.Umhverfis- og mannvirkjaráð samþykkir að vísa erindinu til bæjarráðs.