Skólanefnd - 6
- Kl. 14:00 - 16:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 6
Nefndarmenn
- Preben Jón Péturssonformaður
- Anna Sjöfn Jónasdóttir
- Tryggvi Þór Gunnarsson
- Helgi Vilberg Hermannsson
- Sædís Gunnarsdóttir
- Áslaug Magnúsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Hjörtur Narfasonáheyrnarfulltrúi
- Kristín Sigfúsdóttiráheyrnarfulltrúi
- Árni Konráð Bjarnasonrekstrarstjóri
- fulltrúi skólastjóra
- Jón Aðalsteinn Brynjólfssonfulltrúi grunnskólakennara
- Sædís Inga Ingimarsdóttirfulltrúi foreldra grunnskólabarna
- Kristlaug Þ Svavarsdóttirfulltrúi leikskólastjóra
- Áshildur Hlín Valtýsdóttirfulltrúi foreldra leikskólabarna
- Gunnar Gíslasonfræðslustjóri ritaði fundargerð
PISA 2012
Málsnúmer 2013120093Fyrir fundinn var lögð skýrsla um "Læsi á stærðfræði, viðhorf, námsvenjur og kennsluhættir í grunnskólum á Akureyri, samkvæmt PISA 2012." Skýrslan er unnin fyrir skóladeild Akureyrarbæjar og er höfundur hennar Almar Miðvík Halldórsson.

Lagt fram til kynningar og fræðslustjóra falið að skipuleggja kynningarfund með Almari Miðvík Halldórssyni fyrir aðila skólasamfélagsins.

Samtaka - svæðisráð foreldra - beiðni um fjárstuðning við námskeiðshald
Málsnúmer 2014010103Fyrir fundinn voru lögð drög að samningi milli skóladeildar Akureyrarbæjar og Samtaka - svæðisráðs foreldra nemenda í grunnskólum.

Skólanefnd samþykkir að fela fræðslustjóra að ljúka gerð samnings í samræmi við umræður á fundinum og að samningsupphæðin verði kr. 250.000.

Samningur um skólavist utan lögheimilissveitarfélags
Málsnúmer 2014030103Anna Sjöfn Jónasdóttir L-lista mætti á fundinn kl. 14:40.$line$
Fyrir fundinn voru lögð drög að samningi milli Akureyrarbæjar og Eyjafjarðarsveitar um skólavist utan lögheimilssveitarfélags.

Skólanefnd samþykkir fyrirliggjandi drög.

Tímaúthlutun til kennslu 2014-2015
Málsnúmer 2014030100Fyrir fundinn var lögð tillaga að skiptingu fjármagns milli grunnskóla, til almennrar kennslu og sérkennslu, fyrir skólaárið 2014-2015.

Skólanefnd samþykkir tillöguna.

Starfsáætlanir grunnskóla 2014-2015
Málsnúmer 2014030106Erindi dags. 13. mars 2014 frá skólastjóra Giljaskóla. Þar er óskað eftir vilyrði skólanefndar fyrir því að skólaslit verði 5. júní 2015 og þar með verði skólaslitadagur tvöfaldur dagur sem bætist við þá tvo tvöföldu daga sem eru í kringum árshátíð skólans.

Skólanefnd samþykkir erindið.

Viðurkenningar skólanefndar 2014
Málsnúmer 2014030102Fyrir fundinum lá að tilnefna fulltrúa skólanefndar í valnefnd vegna viðurkenninga skólanefndar árið 2014.
Skólanefnd samþykkir að skipa Helga Vilberg Hermannsson sem fulltrúa sinn í valnefndina.Staða skólastjóra Grímseyjarskóla
Málsnúmer 2014030104Erindi dags. 14. mars 2014 frá Huldu Signýju Gylfadóttur skólastjóra Grímseyjarskóla, þar sem hún segir stöðu sinni lausri frá og með 1. ágúst 2014.

Skólanefnd þakkar Huldu Signýju vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Staða skólastjóra Síðuskóla
Málsnúmer 2014030099Erindi dags. 13. mars 2014 þar sem Ólafur B. Thoroddsen skólastjóri Síðuskóla segir upp stöðu sinni frá og með 1. október 2014.

Skólanefnd þakkar Ólafi fyrir vel unnin störf og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi.

Ársskýrsla skóladeildar 2013
Málsnúmer 2014030101Fyrir fundinn var lögð til kynningar, Ársskýrsla skóladeildar 2013.