Fræðsluráð - 12
- Kl. 09:30 - 11:30
- Fundarsalur á 2. hæð í Glerárgötu 26
- Fundur nr. 12
Nefndarmenn
- Dagbjört Elín Pálsdóttirformaður
- Siguróli Magni Sigurðsson
- Þórhallur Harðarson
- Guðmundur H Sigurðarson
- Anna María Hjálmarsdóttiráheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Árni Konráð Bjarnasonforstöðumaður rekstrardeildar
- Karl Frímannssonsviðsstjóri fræðslusviðs ritaði fundargerð
Aðgerðaráætlun gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum
Málsnúmer 2017110400Endurskoðuð aðgerðaráætlun fyrir árin 2018-2020 gegn kynbundnu ofbeldi var rædd. Velferðarráð ber ábyrgð á aðgerðaráætluninni, framkvæmd hennar og eftirfylgd.
Viðurkenningar fræðsluráðs 2018
Málsnúmer 2016010018Málinu frestað.
Endurskoðun skólastefnu Akureyrarkaupstaðar 2018
Málsnúmer 2017080125Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir stöðu vinnu við endurskoðun á skólastefnu Akureyrarkaupstaðar.
Fræðslusvið - stjórnkerfisbreytingar
Málsnúmer 2017030171Karl Frímannsson sviðsstjóri fræðslusviðs gerði grein fyrir stöðu stjórnkerfisbreytinga á fræðsluskrifstofu.
Handbók fræðsluráðs 2014 - 2018
Málsnúmer 2014060220Handbók fræðsluráðs var lögð fram til kynningar og umræðu.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra að uppfæra handbókina.
Íslensk málstefna - notum íslensku til alls
Málsnúmer 2018050165Íslensk málstefna lögð fram til umræðu.
Fræðsluráð undirstrikar mikilvægi þess að vandað íslenskt mál sé notað í skólastarfi sem og í allri opinberri stjórnsýslu. Nota skal íslensku til alls.
Áskorun frá stjórnendum grunnskóla Akureyrarkaupstaðar
Málsnúmer 2018050164Áskorun frá stjórnendum grunnskóla Akureyrarkaupstaðar barst fræðsluráði þar sem óskað er eftir að gerður verði vandaður samanburður á útgjöldum stærstu sveitarfélaga landsins til fræðslumála.
Fræðsluráð tekur jákvætt í erindið og leggur til að mönnun í skólum verði skoðuð sérstaklega samhliða endurskoðun á skólastefnu Akureyrarkaupstaðar.
Sviðsstjóra er falið að svara erindinu.Grunnskólar Akureyrarbæjar - gjaldfrjáls námsgögn
Málsnúmer 2017060154Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrasviðs gerði grein fyrir niðurstöðu útboðs vegna gjaldfrjálsra námsgagna.
Rekstur fræðslumála 2018
Málsnúmer 2018030030Árni Konráð Bjarnason forstöðumaður rekstrarsviðs gerði grein fyrir rekstrarstöðu fræðslumála fyrstu þrjá mánuði ársins.